Eimreiðin - 01.09.1916, Síða 35
á rúmum 4 dögum; hraði hennar á brautinni er 89 km. á sek.,
en fjarlægð hennar frá sólu aðeins 4,880,000 km. I þessu sól.
kerfi sýnir litsjáin þá jarðstjörnu, sem er 12 sinnum nálægari sólu
en Merkúríus, hin næsta pláneta sólu í voru sólkerfi, og fer 22
sinnum fljótar um þyngdarmiðjuna en Merkúríus, sem er 88 daga
á leiðinni. í litsjánni hafa menn uppgötvað margar aðrar reiki-
stjörnur með mjög stuttum umferðartíma, og sumar virðast jafn-
vel þjóta á nokkrum eyktum kringum meginsólina. Oft eru
hnettirnir í tvístjörnusambandinu hérumbil jafnstórir, fer þá hvor-
ugur kringum hinn, en báðir halda sér í jafnvægi, eins langt hvor
frá öðrum sem hægt er, en þó með fastri innbyrðis fjarlægð, og
hringsóla þá kringum sameiginlega þungamiðju, og þarf það alls
ekki að vera hnöttur, heldur aðeins tómt rúm.
Það hefir komið í ljós, að margar stjörnur eru eigi aðeins
tvöfaldar, heldur margfaldar; sumar eru þrefaldar eða fjórfaldar,
og menn hafa líka fundið fimmfaldar stjörnur, áttfaldar og jafnvel
16-faldar; en slík margstirni eru þá orðin að stjörnuklasa, þar sem
alt hringsnýst hvað um annað, og það jafnvel ennþá fleiri stjörn
ur; en lítt hefir .mönnum tekist að rannsaka þær hreyfingar. Víst
er það, að í mörgum stjörnuþyrpingum eru sólirnar vegna upp-
runa og nálægðar mjög tengdar hver annarri, svo að þyngdarlög-
málið heldur þeim saman innan vissra vébanda; en mörg undar-
leg fyrirbrigði hljóta að vera þar á ljósaskiftum og öðru á þeim
plánetukerfum, er þeim sólum fylgja. Vér höfum áður getið þess,
að tvístjörnur eru oft mislitar, og hlýtur það að vera afarundar-
legt fyrir þær verur, er búa kunna á jarðstjörnum í þeim sólkerf-
um, að sjá mislitar sólir á lofti, á víxl gular, rauðar, bláar og
grænar.
Vér skulum að lokum til dæmis geta um margfalda stjörnu
í alþektu stjörnumerki, og hefir einn nýr liður í því kerfi fundist
fyrir skömmu; áður hugðu menn það ferfalt, nú er það orðið
fimmfalt. Mízar, miðstjarnan í stöng Vagnsins, er stjarna í 2.
röð, og má með hvassri sjón nálægt henni sjá litla stjörnu af 5-
stærð, sem kölluð er Alkor. Stjörnur þessar eru samstæður, tvær
sólir, sem hreyfa sig um sameiginlega þungamiðju, en umferðar-
tími þeirra er afarlangur, líklega nokkur þúsund ár. Menn hafa
lengi vitað, að Mízar auk þess er tvístjarna, og í lítilli sjónpípu
má sjá daufa stjörnu mjög nærri henni; þetta var hin fyrsta tví-
stjarna, sem stjörnufræðingar urðu varir við; Riccíóll fann hana