Eimreiðin - 01.09.1916, Page 43
199
3 árum. Ef sjúkdómur hans varir lengur, verður hann að fara úr
sjúkrasamlaginu samkvæmt lögum. En fái hann fulla heilsu seinna,
getur hann, með því að leggja fram læknisvottorð, aftur fengið upp-
töku í sérhvert ríkisviðurkent sjúkrasamlag.
TILLÖG OG UPPTÖKUGJALD (INNGÖNGUEYRIR).
Fullorðnir, bæði menn og konur, borga i krónu í upptöku-
gjald í sjúkrasamlagssjóð og piltar og stúlkur, frá 15 til 18 ára
að aldri, 50 aura. (Upptökugjaldið er þó allmismunandi í sjúkra-
samlögunum).
Tillagið, sem altaf á að greiðast mánaðarlega og fyrirfram,
er oft töluvert mismunandi að upphæð í hinum ýmsu sjúkrasam-
lögum og samsvarar útgjöldunum. Pví hærri dagstyrk, sem félags-
menn fá, því hærri eru tillögin. Eg skal skýra hér frá þeim tillags-
upphæðum og samsvarandi dagstyrksgjöldum, er mest tíðkast víð-
ast hvar í sjúkrasamlögunum á Jótlandi:
Mánaðartillagið kr. 0,40
dagstyrkurinn kr. 0,60
— 0,80
— 1,05
— 1,60
— 2,20
— 2,85
— 0,70
— 1,00
— 1,50
— 2,00
— 2,50
Eins og sjá má af þessari skrá, er upphæð tillagsins og dag-
styrksins hérumbil jafnhá.
Peir félagsmenn, sem hafa fastar tekjur og halda þeim óskert-
um, er sjúkdóm ber að höndum, geta fengið tillagið lækkað að
nokkrum mun, t. d. um ^/s hluta.
Ekkjumenn og ekkjur eða aðrir einstaklingar, sem eiga börn,
yngri en 15 ára, verða að greiða 25 aurum hærra tillag á
mánuði.
Ef einhver félagsmanna vanrækir að greiða tillag sitt í 3
mánuði í röð, er hann rækur úr félaginu, og getur ekki fengið
inngöngu í það aftur, nema hann borgi alla skuldina og ennfrem-
ur nýtt upptökugjald. Ef hann er eldri en fertugur, getur hann
alls ekki fengið upptöku í félagið aftur, nema það sannist, að at-
vinnuleysi eða önnur ófyrirsjáanleg óhöpp hafi gert honum ómögu-
legt að greiða tillag sitt í tæka tíð.
Sveitar- og bæjarstjórnir hafa rétt til, án samþykkis æðri