Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1916, Page 45

Eimreiðin - 01.09.1916, Page 45
201 er mjög mikill og erfiður. En samkvæmt hinum nýju sjúkrasam- lagalögum, sem fyrir skömmu eru gengin í gildi, eiga formenn samlaganna nú að fá dálítil laun, enda er það réttmætt. Öll ríkisviðurkend sjúkrasamlög í hverju amti mynda eitt höf- uðsjúkpasamlag, með sérstakri stjórn. I höfuðsjúkrasamlaginu eru vanalega haldnir 2—3 fundir á hverju ári. Fundina sækja fulltrúar frá öllum sjúkrasamlögunum. Vanalegast mætir einn fulltrúi fyrir hvert hundrað félagsmanna, nema í mjög stórum sjúkrasamlögum, þar mætir máske aðeins einn fulltrúi fyrir hverja 500 félagsmenn. Amts- eða höfuðsjúkrasamlögin í öllu ríkinu mynda aftur allsherj- arsjúkrasamlag ríkisins, sem hefir sína sérstöku stjórn og fulltrúa, sem kosnir eru á fundum í amtssjúkrasamlögunum og meðal stjórnarfulltrúa þeirra. Yfir öllum sjúkrasamlögum ríkisins stendur yfirumsjónarmað- ur, sem er háttstandandi embættismaður, er ásamt aðstoðarmönn- um sínum myndar einskonar stjórnardeild í innanríkisráðaneytinu. Yfirumsjónarmaðurinn á sæti í ýmsum nefndum og dómstól- um, sem eiga að skera úr þrætumálum milli sjúkrasamlaganna inn- byrðis eða milli þeirra og læknafélaganna. Hann er oft og einatt einskonar milligöngumaður og sáttasemjari milli lækna og sjúkra- samlaga ásamt áðurnefndum kviðdómum, sem bæði sjúkrasamlaga- fulltrúar og fulltrúar allsherjarlæknafélagsins eiga sæti í. Formaður hvers sjúkrasamlags er skyldur, ár hvert fyrir 15. febrúar, að senda yfirumsjónarmanni sjúkrasamlaganna skrá yfir tölu félagsmanna. Allir stjórnarmenn ásamt endurskoðunarmönn- um verða að votta skriflega, að skráin sé rétt í alla staði. Með henni eiga að fylgja reikningar yfir öll útgjöld og tekjur félagsins á hinu umliðna ári. Yfirumsjónarmaður og aðstoðarmenn hans reikna svo út, eftir þessum skjölum og skýrslum, tillag það, er hvert sjúkrasamlag, samkvæmt lögum, á að fá úr ríkissjóði, en það er 2 krónur fyrir hvern félagsmann árlega, og þar að auki V4 hluti af öllum útgjöldum sjúkrasamlaganna á umliðnu reikn- ingsári. P*ó eru hér dálitlar skorður settar, sem sé, að í Kaup- mannahöfn greiðist aldrei meira en kr. 4,40, í kaupstöðum kr. 4,00 og til sveita kr. 3,60 árlega úr ríkissjóði. Petta er þannig hámark ríkissjóðsstyrksins, og er heldur ekki alllítið, þegar tekið er tillit til allra annarra hlunninda, sem sjúkrasamlögin hljóta frá ríkisins hálfu eða frá sveitar- og amtssjóðum, svo sem áður hefir verið á drepið, t. d. hvað vist á spítölum og heilsuhælum snertir.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.