Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1916, Qupperneq 58

Eimreiðin - 01.09.1916, Qupperneq 58
Svona vondu komi hefir ættjarðarástin niður sáð, enda mun ilt af gróa. Siðmenningin hefir aldrei bitist líkt þessu, — svona guðrækin í orðum svona hundheiðin innan rifja. Hún hefir aldrei bitist líkt þvl, sem hún gerir nú og gert hefir þessi síðustu missiri, þar sem hún berst um þau gæði, sem eiga að vera sameiginleg öllu mannkyni, þannig, að gæði hvers lands séu friðhelg þeirri þjóð, sem fædd er 1 landinu. — l’etta er viðbjóðsleg trú: að ljúga að sjálfum sér og öðr- um, að guð sé með þjóðinni í manndrápi. Og þessi föðurlandselska er herfileg, sem gerir bandalag við trúna, eða neyðir hana til að magna seið að náunganum, til skammlífis honum og örbirgðar, en sjálfri sér og sínum til langlífis og fullsælu fjármunanna. Þetta er ættjarðarást á glapstigum — fölsk föðurlandselska. Trú og föðurlandsást eru fagrar og háleitar hugmyndir, og er eðli þeirra stórheilagt, meðan það er óspilt. En vandfarið er með vænan grip, segir gamalt spakmæli. »Og þeir vóru vitrir, þeir gömlu.« Trú- in hefir verið gerð að flagðkonu lengi og víða. Saga trúarbragðahat- urs og ofsókna er til frásagna um þann sárgrætilega sannleika, og eru þeir kaflar í árbókum sögunnar einna átakanlegastir til minja um »villu- nótt mannkyns«, hve voðalöng hún er orðin. Og því miður hefir nú gert þann sólmyrkva á vonarhimni hugsjónanna, sem ber skugga á hálfa heimskringluna. Og ef ættjarðarást þjóðanna mætti sjá sannleik- ann og ef hún gæti mælt réttum orðum, þá mundi hún verða að við- urkenna þetta í hljóði og játa upphátt: Ég er ekki saklaus af blóðinu, sem rennur um löndin þessi miss- iri. Ég hefi verið vilt og þarf að breyta stefnunni, svo að ég sómi mér og geri skyldu mína. — En því þá að sækja svona langt efni í mál mitt? — Ymsar orsakir eru til þess. Aðalorsökin er þessi, að styrjöldin mikla er svo víðfaðma og djúptæk í starfi sínu og áhrifum, að hún hlýtur að grípa föstum tökum í hugi vora. Fyrst og fremst spyrjum vér, hvernig standi á ósköpunum. Þeim spurningum hefir verið svarað á ýmsar lundir og margar orsakir verið taldar. Sínum augum lítur hver og einn á þær orsakir, og munu margir hafa brot af sannleikan- um í sínu svari, en fáir eða engir allan. Maðurinn er svo gerður, að hann vill vita orsakir atburðanna. Og þó að okkur ríði eigi mikið á að vita orsakir ófriðarins 1— okkur, sem erum álengdar-áhorfendur, þá getum við þó ekki varist forvitninni. En þegar þeirri forvitni er svalað, annaðhvort með röksemdasvör- um, eða þá með fullyrðingum, sem teknar eru gildar, þá er gott að beina athyglinni í aðra átt — heim á leið til skoðunar í barminn, sem við getum lagt höndina á. Og þá verður okkur að spyrja: Getum við nokkuð lært af þessum hildarleik? Mér sýnist svo. Mér virðist við íslendingar getum vakist til um- hugsunar um okkar sakir, með því að hugleiða orsakir styrjaldarinnar og alla þá miklu veraldarógæfu, sem af henni stafar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.