Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1916, Síða 63

Eimreiðin - 01.09.1916, Síða 63
219 byssukjafturinn sé ekki farinn að spúa eldinum inn í sjálft dverg- ríkið. Þessi voðalegi ófriður, sem nú geisar, hlýtur að sannfæra þjóð- imar um þann sannleika, að ættjarðarástin var komin á glapstigu. Sagan hlýtur að skilgreina þann þátt á sínum tíma. Þessa hamslausu ættjarðarást verður að krefja um ábyrgð fyrir þau voðalegu gjaldþrot, sem siðmenning álfunnar hefir nú steypt sér út í. Það hefir verið eitt mesta meinið okkar íslendinga, að þjóðmála- mennirnir hafa ekki — eða þá of lítið — fundið til ábyrgðar, þeir, sem hafa haft hæst um sig í blöðunum og á alþingi. Skorturinn á ábyrgðartilfinningu var kominn á neðstu hellur í ráðherratíð Sigurðar Eggerz. Þá spurði sá maðurinn, sem setið hafði á alþingi einna lengst: »Er Island öllum heillum horfið?« Hann spurði í áheyrn alþjóðar — f blaði. Hann hefir um fjórð- ung aldar borið ábyrgðarþunga kennimannsins, trúmannsins og þing- mannsins. En þá var loksins fullur sá mælir, sem ættjarðarástin glap- stigagenga hefir helt í gallblöndunni. Þá fóru þremenningarnir á kon- ungsfund. Og þeir sáu það, þegar þangað kom, að þ a r tjáði ekki að segja það, sem fullgott þótti handa kjósendum í landi voru. Þeir hneigðust að þeirri úrlausn mála vorra í ríkisráðinu, sem Hannes Haf- stein var búinn að afreka. Og þeir sneru huga sínum að nytjamálum þjóðarinnar. Vonandi er, að nú séu orðin tímamót í landi voru, að því leyti, að þjóðinni standi ekki lengur voði af »ættjarðarástinni«. En þá stendur þjóð vorri hætta af ættjarðarástinni, þegar hún er trylt af ó- vild til erlendrar menningarþjóðar, sem gerir vel til hennar, en er af- skiftalaus um menningu og atvinnuvegi í sínu eigin landi — eða af- skiftalítil um hagi þjóðarinnar. Baráttan, sem stórveldin heyja nú, út af utanrikjaágreiningi í fyrstu, ætti að færa okkur heim sanninn um það, að ekki er leikur gerandi til þess, að standa í ófriði, sem ekki sér fyrir endann á og háður er um skegg keisarans. Nú fara kosningar í hönd til alþingis, vandameiri en verið hafa áður, þar sem alþýðan á að kjósa þá menn, ásamt hinum, sem kon- ungurinn hefir valið. Kjósendur landsins okkar eiga ekki skilin þau mannréttindi, sem nú eru fengin, ef þeir ganga til næstu kosninga með þeirri grunn- fæmi, sem gengið hefir til kosninga í sumum kjördæmum landsins síðustu sex ár. Nú mætti ekki kjósa aðra menn en þá, sem eiga fyr- ir vinkonu pá œttjarhardst, sem ann pjóhinni og vill styðja hana til jprifnaðar í raun og veru hérna heima, par sem vér erum einráðir og ódreittir. Hættan, sem vofir yfir þjóð vorri, er öll heimaalin — ekki frá Dönum a. m. k. Sú hætta er að vísu ekki beinlínis heimaalin, sem stafar frá veðráttunni. En hún er þó ekki úr þeirri átt, sem Danmörk liggur í. — En sú hætta, sem ógnar okkur mest, hún er landlæg, sveitföst. Hún er fólgin í sundrung og úlfúð, valdagræðgi og metorðafýsn. Sú óvættur kom þjóð vorri á kaldan klaka á Sturlungaöldinni. Og enn þá er sá klaki nógu harður og háll, til þess að þjóðin geti rekið nið- ur hné sitt á honum og orðið hölt af byltunni.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.