Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 70

Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 70
226 umtalaða hungur í Berlín. Og ölið var enn betra, svo ég get vel skilið, að seint muni komast á aðflutningsbann hjá Pjóðverjum. En mjög áfengt er ölið ekki, og segja kunnugir, að meðalmaður rnuni þurfa 3 könnur til að gjörast kendur, en að minsta kosti io til að verða út úr; en mikið er þó komið undir, hve fljótt er drukkið; því líði nokkurt bii á milli skamtanna, geta lifur og nýru náð að losa líkamann við eitrið. En sé fljótt drukkið, eins og við kapp- drykkjur hjá Pjóðverjum, þá segir maginn til sín með velgju, vill ekki meira og selur upp af sjálfsdáðum eða með tilhjálp. Róm- verjar notuðu páfuglsfjöður til að kitla með kokið, en Pjóðverjar nota fingurna. Pjóðverjar hafa sem sé lengi verið annálaðir fyrir bjórdrykkju, og þykir þar karlmenska, að geta tæmt sem flestar ölkönnur í rykk við sum hátíðleg tækifæri. Einkum ber á þess- um metnaði meðal stúdenta. Við samdrykkjur þeirra fer alt fram eftir lögbundnum venjum með ýmsum formálum og »seremóní- um«. Pegar yfirbyrlari eða drykkjustjóri (magister bibendi) hefir gefið merki, með því að hlunka sinni krukku í borðið, gjöra allir hinir slíkt hið sama, svo að af því verður dynkur mikill. Drekka þá allir til botns í einu andartaki og setja könnuna aftur á borð- ið með opnu loki. En ef einhver svíkst undan og hefir ekki lok- ið úr könnunni, en samt látið hana opna standa, þá er öllum heimilt að setja könnur sínar ofan á hans, og um leið skyldast þessi hálfdrættingur til að fylla allar könnur félaga sinna. Á Psorrhúsinu sátu nú að drykkju menn af ýmsum stéttum, eldri og yngri, og drukku sumir fast. Eg sá gestina hverfa við og við út í ranghala út úr sjálfu ölhúsinu. Par var laglegt her- bergi, og gátu menn þar þvegið sér um hendur o. fl. En í einu horninu stóð lítið altari, að mér sýndist. Pað var úr marmara og haglega smíðað. Eg spurði félaga minn, í hvaða helgiskyni þetta altari væri reist. »Pað er helgað Bakkusi,« sagði hann, og sýndi mér nánar byggingu þess. Pað var þá holt innan, og trektmynd- að ofantil, en frárensli úr því niður, eins og úr vatnsalerni. Við barmana voru handrið sitt hvoru megin úr skygðum málmi. »Pessi handrið eru til stuðnings fyrir vel drukna menn, sem koma hingað í þeim erindum að færa fórnir ölguðinum« — sagði félagi minn, sem oft hafði verið viðstaddur slíkar fórnfæringar. — »Jörð tekr við ölþri« — stendur í Eddu. Mér þótti þetta alt hugulsamt og nærgætið við gestina, en mér fanst eiginlega vanta altaristöflu eða líkneski hins góðglaða Bakkusar til að prýða þessa kapellu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.