Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1916, Page 75

Eimreiðin - 01.09.1916, Page 75
231 ekki um landvinninga stærðfræðisskólans í hagfræði, sem hvíla á nota- gildi síðustu einingarinnar (Grenznutz, marginal utility). Hallast þó flestallir yngri vísindamenn að þeim skoðunum og þær eru kendar við flesta háskóla. — Frá sjónarmiði Jónasar er greinin annars mjög ljós, að vanda. Þórólfur Sigurðsson ritar um auðsjafnaðarkenningar. í þessu hefti um kenningu George, að setja jarðaskatt einan í stað allra annarra skatta. Gerir hann þar engan greinarmun á skatti þeim, sem George barðist fyrir, og jarðasköttum nútímans. Hann greinir heldur ekki milli verðhækkunarskatta og tekjuhækkunarskatta, og er þó mikill munur á áhrifum þeirra. í'ýzku skattarnir heyra undir verðhækkunarskatta, en ensku skattarnir eru í rauninni tekjuhækkunarskattar. Virðist stundum bóla á nokkrum misskilningi hjá honum, sérstaklega um andmælin gegn skattinum. Hann virðist t. d. ekki hafa veitt því atriði eftirtekt, að skatturinn getur orðið ranglátur í garð þeirra jarðeigenda, sem keypt hafa verðhækkunina fullu verði, en jörðin ekki orðið síðar fyrir neinni óverðskuldaðri verðhækkun. Þar lendir skatturinn á öðrum, en til er ætlast. Annars mun það vera í fyrsta skifti sem ritað er um kenn- ingar George á íslenzka tungu. Auk þessara greina eru þar greinar eftir Benedikt Jónsson um stríðið, Benedikt Bjarnason um andlegan jarðveg þjóðarinnar og enn fleiri ritgerðir. Að öllu má finna. í'að, sem gefur riti þessu sérstakan blæ, er ekki, að alt efnið sé óskeikult, heldur, að menn verða varir nýrra strauma heima og manna, sem standa á bak við. f’etta er skref »til að vekja þjóðina og halda henni vakandi?. Nýjar stjórnmálaleiðir eru á uppsiglingu. Hver veit, nema þarna sé frækorn til nýrrar öflugrar og frjálslyndrar stjórnmálastefnu á íslandi, sem svo margir vonast eftir. Hébinn Valdimarsson. SELMA LAGERLÖF: JERÚSALEM I. Þýtt hefir Björg P. Blendal. Rvík 1915 (Sig. Kr.). Innganginn að þessari frægu skáldsögu Selmu Lagerlöf þekkja lesendur vorir úr Eimr. XI, 185—213 (»Ingimararnir«). En hér birt- ist alt fyrra bindið, og í ár er von á síðara bindinu, þar sem sagt er frá Jórsalaferð Svíanna. En hér er sagt frá aðdragandanum til þeirrar ferðar og lýst Iífi manna og háttum heima í Dölunum í Svíþjóð. Er sú lýsing aðdáanlega vel gerð, fræðandi, skemtandi og skáldleg. Og svo vel er þýðingin af hendi leyst,* að snild höf. og þýð. haldast fylli- lega í hendur. Væri ekki verið að lýsa lífi og staðháttum, sem eru svo frábrugðnir íslenzkum háttum, mundi enginn verða þess var, að hér væri um þýðingu að ræða, heldur frumsamið rit eftir þaulæfðan höf., sem væri orðinn mjög leikinn í málinu. Það er gaman að fá listaverk þýdd á vora tungu, þegar svo vel er þýtt. Þessa bók ætti fólkið að kaupa. Því hún er í alla staði snildarverk. V. G.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.