Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1920, Side 6

Eimreiðin - 01.01.1920, Side 6
6 JÓHANN SIGURJÓNSSON [EIMREIÐIN og skotta öldum saman og seint mun verða kveðin niður til fulls, þótt nú sé nokkuð farið að draga úr henni. Flestum mun enn þá minnisstætt, hvílíka óbeit og gremju það vakti um heim allan, þegar þýskir visindamenn gerð- ust til þess í upphafi ófriðarins að verja aðfarir Þjóðverja gagnvart Belgiu. Þeir töiuðu þá meðal annars margt um vesældarlíf smáþjóðanna, sem engan rétt ætti á sér gagn- vart hinu stórvirka mannlífi, hinum feiknarlegu ætlunar- verkum og hinni örlagaríku framtíð stórþjóðanna. Mönn- um þótti þessi kenning hörð og ruddaleg, sem von var til, en þó er eg hræddur um að í henni felist talsvert af beisk- um og hræðilegum sannleika. Hin litlu þjóðfélög eru öll í þeim hörmulegu alögum, að miðlungsvitið og miðlungslund- in þrífst þar að sama skapi vel, sem óvenjulegir hæfileik- ar þrífast illa. Til þess eru mörg rök, sem hér verða ekki talin, enda liggja flest þeirra í augum uppi. En aðalrót meinsins er þetta, hvað mennirnir minka og auðvirðast hver í annars augum i hinum litlu þjóðfélögum, þótt hvergi kasti nú tólfunum eins og þar rem fásinnið er svo mikið, að menn verða að hafa sér það til dægrastyttingar, að telja vörlurnar og freknurnar hverir á öðrum, þar sem menn þukla og káfa og þefa hverir af öðrum, þangað til allir eru orðnir þreyttir og leiðir, — og vantrúaðir bæði á sjálfa sig og alla hina. Þetta fyrirbrigði hefir þekst bæði fyr og síðar víða um veröldina. í Markúsarguðspjalli segir svo frá, að þeir í Nazaret vildu ekki trúa á kraftaverk Jesú af því að hann væri ekki nema »smiðurinn, sonur Maríu« og systkin hans væru þar í bænum. »Og þeir hneyksluð- ust á honum«. Því er bætt við, að hann hafi engin veru- leg kraftaverk getað gert þar, — »og hann furðaði sig á vantrú þeirra«. íslenskir prestar ættu að minna söfnuði sína sem oftast á þessa merkilegu frásögu. Því að rótgró- in vantrú á mátt og megin hinnar íslensku kynslóðar og hvers íslensks einstaklings hefir verið landlæg plága hér um langan aldur, þrátt fyrir talsverðan þjóðernisgorgeir í orði. Og víst er um það, að þegar það spurðist um Jó- hann Sigurjónsson, að hann ætlaði sér að keppa við út- lenda rithöfunda, þá hneyksluðust margir landar hans á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.