Eimreiðin - 01.01.1920, Síða 32
32
BOLSJEVISMI
[EIMREIÐIN
uðu stjórnarbyltingar, ekki einungis til þess að ko'lvarpa
keisaravaldinu heldur einnig auðvaldinu eins og það
birtist þeim. t*að var þannig ekki nema eðlileg við-
burðarás að alt varð að lúta fyrir bolsjevismanum á
Rússlandi. Lærisveinar Marx hafa hvergi breytt skoð-
unum sinum jafnlítið sem þar og hvergi verið jafn
samhuga. Rar hafa þeir, eins og áður er tekið fram, unn-
ið saman, en í öðrum löndum ber þeim svo á milli,
sumpart í dirfsku, sumpart i skoðunum, að alment má
skipa þeim í þrjá flokka. En út í þá flokkaskiftingu er ó-
þarft að fara í þessu sambandi.
Rússneska Stjórnarbyltingin á Rússlandi varð i mars-
stjórnarbylt- mánuði 1917, á þriðja ári styrjaldarinnar miklu,
Ín?Íníi°Bi,L0lSJe Tvent er það í sambandi við hana, sem oft
jnn er ekki nægilega athugað. Fyrst það, að hún
snerti atvinnumálin ekki síður en pólitíkina.
Það var verkalýðurinn, sem gerði hana með hjálp hersins
og sjóliðsins. Annað það, að hinir venjulegu byltingar-
leiðtogar voru Qarvistum, í útlegð, er hún gerðist. En
millibilsstjórnir voru um hríð myndaðar af miðstéttunum
og hinum ihaldssamari meðal sósíalista. Þessar stjórnir
skildu, sem vænta mátti, ekki hlutverk sitt og það hlaut
brátt að koma í ljós að þær gátu ekki fullnægt kröfun-
um. Ryltingin varð annaðhvort að fara út um þúfur eða
völdin að komast í hendur þeim mönnum er gert höfðu
hana og skildu breytingu þá er á var orðin bæði i iðn-
aðarmálum heima og í aðstöðunni út á við. Þó að Trot-
sky væri upphaflega ekki strangur bolsejvíki£(sbr. að ofan)
er samt afstöðu þeirra til ófriðarins hvergi eins vel lýst
eins og í bók eftir hann, sem til er á ensku undir titlin-
um The Bolsheviki and the World Peace. Hann ræðst þar
af mikilli andagift á hervaldið og stórveldisandann, eink-
um eins og hvortveggja var á Þýskalandi, og fer hörðum
orðum um meirihluta-sósíalistana þýsku fyrir framkomu
þeirra. Hann heimtar að friður verði þegar saminn til
þess að verkalýðurinn í öllum löndum geti tekið höndum
saman, að »engar skaðabætur skuli greiddar, að sérhver