Eimreiðin - 01.01.1920, Page 34
34
BOLSJEVISMI
1EIMREIÐIN
frv. Það er óþarft að skoða þingrofið sem pólitiskan glæp;
það var óhapp og ef til vill yfirsjón, því að ef bolsjevíkum
hefði tekist að laða þingið til fylgis við sig, mundu þeir
hafa átt við minni misskilning og fordóma að stríða hver-
vetna í Evrópu og Ameriku.
Það yrði of langt mál að reyna hér að skýra frá þviV
hvernig bolsjevíkar stjórnuðu byllingunni. Það væri nóg
efni í aðra grein jafnlanga þessari. Þeir gerðu það ná-
kvæmlega aftir þeim reglum er Marx hafði gefið. Verkefn-
in voru: Hernefnd byltingarmanna, umboðsnefndirnar og
rauði herinn (þ. e. vopnuð alþýða, einkum sósíalistar).
Þeir tóku yfirráðin með valdi og fengu þau vinnulýðnum
í hendur. Og síðan þeir komust til valda fyrir nærri tveim
árum hafa þeir nálega í hverju atriði fylgt kenningum
Marx, bæði í innanlandsstjórn og i afstöðu sinni til ann-
ara rikja.
Stjórnarskrá Það er erfitt að gefa í fáum orðum svo ljósa
bolsjevika. hugmynd um stjórnarskrá Rússa, að menn séu
nokkru nær eftir en áður. Þó skal drepið á fáein atriðir.
Rússaveldi er myndað af bandalagi margra smærri lýð-
velda, sem hvert um sig er undir stjórn umboðsnefnda.
Æðsta stjórn alrikisins er þing umboðsmanna frá nefnd-
um (sovietj verkamanna, hermanna og sveitamanna, og
skal það koma saman að minsta kosti tvisvar á ári. Þetta
þing velur allsherjar framkvæmdarnefnd, er í sitja í hæsta
lagi 200 manns, en þeir menn kjósa svo aftur hina 18
lýðfulltrúa. Þessir fulltrúar velja sér forseta (Lenin). Alls-
herjar framkvæmdarnefndin er eins konar alþingi og hefir
æðsta löggjafar, framkvæmda og eftirlits vald. Hreppar,
sveitir, héruð, borgir o. s. frv. hafa. þing og umboðs-
nefndir, er fylgja slig af stigi og tengja hvern einstakan
kjósanda við framkvæmdarnefndina. Hreppa, sveita og
hjeraðsstjórnir sjá einnig um kosningar, og svipaðar
skyldur hafa umboðsnefndirnar. Þetta er þannig öfugt
við það, sem tíðkast í hinum vestlægari löndum, þar
sem þjóðræði er, því þar er fulltrúaval (kosningar) óháð
sveitar og ríkisstjórn. Lögin samþykkir allsherjar fram-