Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1920, Side 36

Eimreiðin - 01.01.1920, Side 36
36 BOLSJEVISMl [EIMREIÐIN Litovsk. Samkvæmt kröfu bolsjevíka fóru þessir samn- ingar með öllu opinberlega fram; en á meðan gerðist hið besta samkomulag milli rússneskra og þýskra hermanna í skotgröfunum, þó að Þjóðverjar reyndu eftir megni að hindra samgöngur þeirra. t*ann 25. s. m. samþyktu um- boðsmenn Miðveldanna friðarskilmála Rússa í meginat- riðunum, sem sé engar skaðabætur, enga landauka og sjálfsákvörðunarrétt fyrir hvert þjóðerni. Var það hræsnis- fult samþykki og stakk mjög í stúf við ránskröfur þær, er hinn slægi dólgur Kuhlmann kom fram með 28. s. m. Fráhvarf þingsins í Ukraine, sem var myndað af auð- mönnum og afturhaldsliði, hótanir Þjóðverja (sem nú höfðu tekið Riga) um að beita hervaldi, en þó einkum það, að Rússland var aiveg að þrotum komið — Keren- sky hafði sagt sex mánuðum áður, að það væri algerlega örmagna, — urðu Rússar að láta kúgast til að sam- þykkja skilmála Þjóðverja, og voru þeir undirskrifaðir í febrúar 1918. En þó að þeir skrifuðu undir skilmálana, mótmæltu þeir þeim og lýstu því yfir, að þeir mundu ekki halda þá lengur en þeir væru neyddir til. Trotzky lagði niður embætti sitt í mótmælaskyni, en gerðist land- varnarráðgjafi. Lenin tókst að fá allsherjar nefndaþing Rússlands til að samþykkja friðinn með þvi að leiða þvi fyrir sjónir, að þjóðin væri svo uppgefin, að hvíld frá hernaði yrði að fá hvað sem hún kostaði, svo að al- þýðan gæti búist til varnar og bætt yrði úr ástandinu innanlands. í þessu atriði varð Lenin því að vikja frá stefnu sinni, ekki einungis með því að ganga að samn- ingum við fernar auðvaldsstjórnir, heldur einnig með því að samþykkja skilmála, sem höfðu fjarska lítið sameigin- legt við kröfur hans. Bæði í þetta sinn og síðar komst hann að raun um, hve erfitt er að fylgja út í ystu æsar jafnveL hinum einföldustu grundvallarstefnum, sem menn setja sér í pólitík og vilja varðveita sem helga dóma. í viðskiftum sínum við hina ýmsu þjóðflokka í hinu forna rússneska keisaradæmi, sem nú heimtuðu sjálfstjórn, veitti bolsjevíkum oft erfitt að samrýma í framkvæmdinni þær tvær meginreglur sínar, að viðurkenna sjálfsákvörðun-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.