Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1920, Page 46

Eimreiðin - 01.01.1920, Page 46
46 BOLSJEVISMI [EIMREIÐIW grein þjóðarinnar. En það sýnir sig, að allar þessar sögur voru tilhæfulausar, því ekki er nóg með það, að þeir eru enn við völd eftir tutlugu og tvo mánuði -- átta sinnum lengri tíma en nokkur önnur stjórn hefir setið að völdum síðan stjórnarbyltinguna —, heldur lítur svo út sem þeir séu nú fastari í sessi en nokkru sinni áður. Mr. Williams, sá er áður var nefndur, staðhæfir, að á því sviði, er veldi bolsjevika nær yfir, hafi þeir svo alment traust manna, að 95 af hundraði séu þeim fylgjandi. Og þetla traust þjóðarinnar skýrir hann þannig: »Hún hefir fundið, að þeir reyndust vel. Hún veit, að þeir sendu heim tólf miljónir manna undan vopnum. Hún veit, að þeir komu skipulagi á verksmiðjurnar og gerðu þær afkastameiri en áður. Hún veit, að þeir fengu landið í hendur þjóðinni sjállri og komu póstmálum í nýtt og betra horf. Hún veit, að þeir hafa komið upp alþýðuleik- húsum svo þúsundum skiftir. Hún veit, að þeir hafa bygt upp nýja þjóðfélagsskipun frá grunni. Og að því er glundroða þjóðfélagsins snertir veit hún hvernig ástandið var, þegar bolsjevíkar komu til skjalanna, og hún hefir tekið það með í reikninginn. Hún veit, hvað er þeirra sök, og á hverju Bandamenn bera sökina«. Samhljóða staðhæfingu Mr. Williams var vitnisburður sá, er Raymond Robins ofursti, sem Rauði krossinn í Ameriku hafði sent til Rússlands, bar frammi fyrir rann- sóknarnefnd þeirri, sem þing Bandaríkjanna setti til að rannsaka þetta mál síðastliðinn vetur. Þetta, eins og margt annað, sýnir, hve lítið má treysta á frásögn blaðanna um bolsjevíkastjórnina. Og það skiftir að vissu leyti engu máli, hvort óáreiðanleiki þeirra stafar af fáfræði eða samviskuleysi, því hvorttveggja ber hér að sama brunni. Ein af ljótustu sögunum, sem sagðar hafa verið um bolsjevíka, var sú, að þeir hefðu gert kvenfólk alt að »almenningseign«. Sú saga birtist fyrst í New Europe, merku ensku vikuriti um alþjóðapólitík. Að þessu þótti blöðunum nú heldur en ekki matarbragð, og sagan fór eins og eldur í sinu um öll lönd. Þau blöðin, sem best
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.