Eimreiðin - 01.01.1920, Side 74
74
MERKILEGAR MVNDIR
(EIMREIÐIN
Sigurðssonar. En margfalt er sú mynd ófullkomnari. Þá
er og til- uppdráttur af húsaskipun í Skálholti í ferðabók
Gaimards. Þann uppdrátt lét Hannes biskup Finnsson
gera árið 1784.
Ögmundur Sigurðsson, skólastjóri í Hafnarfirði, sem er
manna kunnugastur þar eystra og einkar-vel að sér í
sögu íslands, hefir borið myndina af Skálholtsstað, þá er
eg kom með, nákvæmlega saman við uppdráttinn í ferða-
bók Gaimards. Leyfi eg mér að setja hér ummæli hans
(úr bréfi til mín 15. nóv. 1919) til útskýringar:
»Málarinn hefir málað vesturhlið staðarins, staðið vestur á
túninu og horft í austur; næst honum hlaut þvi að verða túnið
og kúalraðir par næst; að austanverðu við traðirnar kemur
heygarður með fimm upp bornum heyjum, fjósi og hesthusum;
heyin skyggja á mókofann. Lengra til austurs og lítið eitt til
vinstri er kirkja, kirkjugarður og Þorláksbúðin norður af kirkj-
unni. Ollu pessu ber mjög vel saman við uppdráttinn. Suður af
kirkjugarði kemur sjálfur staðurinn, biskupsstofan og skólinn,
ásamt með brytastofu og skemmum, og ber pessu mjög vel
saman að pví er séð verður, en af pví að málarinn hefir staðið i
nokkurri fjarlægð og varla á nógu mikilli hæð, bera húsin hvert
i annað; fjós og heygarður skyggir á biskupsstofuna og á stað-
artraðirnar — milli fjóss og bæjar —, biskupsstofan skj7ggir á
skólann, skólabaðstofu og smjörklefann, en skemmurnar koma
skýrt fram, pótt pær beri hver í aðra; en útieldhús, suðurhús
og prestabaðstofa geta eigi komið vel í ljós. Aftur á móti koma
eigi fram húsin, sem á uppdrættinum eru fyrir norðan traðirnar,
nema tveir örlitlir kofar. Þar var skemma Einars bryta, kon-
rektorseldhús og hlaða. Að eins sjást par tveir kofar lágkúru-
legir. En petta hefir getað borið pannig við frá málaranum.
Myndin er hinn mesti fengur og eflaust svo áreiðanleg sem
mest má verða, pað sem hún nær. Hún mun koma skýrara fram
litað málverk, en lítil ljósmynd. Og hefði staðurinn verið mál-
aður frá fleiri hliðum, er eg viss um, að öll hús hefði komið
fram, sem eru á uppdrættinum frá 1784, ef þau hefði þá verið
uppi standandi«.
»Pó að eitthvað virðist ólíkt, getur pað stafað af pví, að önnur
myndin er málverk, séð frá einni hlið, en hin myndin grunn-
mynd, er að eins sýnir legu og innbyrðis afstöðu bygginganna.
fess er enn fremur að gæta, að málverkið er 12 árum eldra en
grunnmyndin, svo vel getur verið, að húsaskipun hafi hreytst á
þeim tíma. Og enn pá má athuga pað, að þá er uppdrátturinn
var gerður, var Skálholt að hverfa úr sögunni sem biskupsstóll,