Eimreiðin - 01.01.1920, Qupperneq 82
82
LESTRAR- OG ÆFINGASTOFUR
[EIMREIÐIÍ®
lagt fé til þess að kaupa bækur í söfn þessi og ýms
önnur tæki, sem háskólanum er talin nauðsyn á að eign-
ast.
Einnig eru háskólanum að berast álitlegar bókagjaflr.
Erfingjar Olafs sál. Johnsens, fyrrum yfirkennara í Odense,
hafa gefið háskóla vorum bókasafn hans, og er það komið
hingað. Einnig hafa erfingjar séra Friðriks J. Bergmanns
í Winnipeg boðist til að gefa guðfræðisdeild háskólans
allar guðfræðisbækurnar úr safni hans. Er það talið hið
ágætasta bókasafn og mikill fengur fyrir háskóla vorn^
enda boðinu verið tekið með mestu þökkum. Er því von
á þessu bókasafni innan skamms.
Er þess vert, að almenningi sé kunnugt um þessar
tvær höfðinglegu bókagjafir, sem eflaust síðar meir koma
háskóla vorum að góðum noturn.1)
En sem stendur kemur ekkert af þessum söfnum að
hálfum notum vegna húsnæðisvandræða þeirra, er há-
skólinn nú á við að búa.
Bækur þær, sem keyptar hafa verið handa deildunum,.
eru geymdar í lokuðum bókaskápum, sem standa í
kenslustofum deildanna. Er þar ógreiður aðgangur fyrir
stúdenta að bókunum, og geta þeir ekki haft bókanna
nema að litlu leyti not, því ekki verður í einu gert tvent
við sömu stofuna, bæði kent í henni og hún notuð fyrir
lestrarstofu. Auk þess eru orðabækur og ýmsar alfræði-
bækur, sem einna mest þörf er á fyrir stúdenta að hafa
handbærar, geymdar á öðrum stað, þar sem nemendum
er mjög ógreiður aðgangur að þeim til notkunar. Enn.
fremur er svo þröngt í bókasöfnum deildanna að senda
hefir orðið upp á landsbókasafn talsvert af bókum guð-
fræðisdeildar og flestar bækur og tímarit læknadeildar.
Hinum nýk-omnu bókum Ólafs sál. Johnsens hefir orðið
að stafla saman á stað, þar sem ógerlegt er að sva
komnu að hafa þeirra not, og ekki er enn ráðið fram úr
því, hvar hægt sé að geyma bókasafn séra Friðriks J.
Bergmanns, þegar það kemur hingað innan fárra mánaða.
1) Pá heíir og prófessor Finnur Jónsson aríleitt háskólann aö bókum sinum*
en hann mun eiga aíbragðs-bókasafn í norrœnum fræðum. Ritstj.