Eimreiðin - 01.01.1920, Blaðsíða 101
eimreiðiN) TÖFRATRÚ OG GALDRAOFSÓKNIR
101
móti hreyft sig. Komið hefir það fyrir, að fangarnir hafa
verið i svo miklum kulda, að fætur þeirra frusu og fóru
af þeim, svo að þeir voru farlama upp frá þvi. Sumir eru
í eilífu myrkri, svo að þeir vita ekki, hvort nótt er eða
dagur. . . .« þetta er að eins örlítið sýnishorn af lýsingu
Prætoriusar, og hann kom sjálfur í þessi fangelsi og þekli
þau. Enda eru margar fleiri lýsingar til, og ber þeim vel
saman. Rottur og mýs og alls konar kvikindi voru látin
hafast við í fangelsunum, og svo voru fangarnir varnar-
lausir, að það kom fyrir, að mýs nöguðu hold af beinum,
og lýs létu þá enga værð fá nótt né dag.
Og þó voru verðirnir verstu gestirnir. Vér getum
imyndað oss það, hvernig þeir hafa komið fram við
þessar alvarnarlausu konur í fangelsunum, enda voru
sögurnar af því ófagrar. En ekkfrt þýddi að bera sig upp
við yfirvöldin. Galdrakona var talin Ijúga; það var fyrsta
og órækasta vissan. Ef þær báru það fyrir réttinum, að
einhver þrællinn hefði misboðið þeim og misþyrmt, þá
fengu þær það svar aftur, að það mundi hafa verið
Kölski, sem hefði heimsótt þær i gervi fangavarðarins.
Auk þess spöruðu þeir ekki ógnanir og lýsingar á öllum
þeim pyndingum og skelfingum, sem þær ættu í vændum.
Oft urðu konur að sitja í þessum fangelsum langa-lengi
áður en til yfirheyrslu kæmi. Margar urðu vitskertar af
meðferðinni og aðbúnaðinum. Rær biðu með óþreyju eftir
réttarprófunum, því að verra gat ekki tekið við. Andlegu
og líkamlegu kvalirnar voru jafnmiklar. Stunur og and-
vörp heyrðust úr hverju horni. Hljóð og kveinstafir frá
þeim, sem nýkomnar voru úr pyndingunum. Örvænting-
aróp frá þeim, sem loks hafa látið undan kvölunum og
játað á sig allar svivirðingarnar og þar með fengið fyrir-
litningu allra og eiga að berast á bálið á næstu stundu.
Þegar tímar liðu fram, skánaði fangavistin lítið eitt. Að
vísu gekk illa að fá lagaboðum í þá ált hlýlt, en þó
varð ævi fanganna ekki eins ósegjanlega ill og fyrst. Pað
er einkum eftir að veraldlegu dómstólarnir hafa tekið
galdramálin að sér, að þetta tekur að skána. Carpzow