Eimreiðin - 01.01.1920, Side 115
EIMREIÐIN]
FRESKÓ
115
að móðir þín var heimagangur hér og alþekt alla ævi
sína; að hún var dóttir Evaristo Renzo; að útlendingur
nokkur, sem menn héldu að væri listamaður á ferð, gaf
sig mikið að henni um stund; að Nerina Renzo fór með
honum burt og var burtu í eitt ár, og á meðan beið
Renzo bana af völdum nauts, sem hann var að koma
böndum á; að hún kom aftur að þessu ári liðnu og sagði
engum, hvar hún hefði verið; að hún fékk eftir föður
sinn að eins nóg til þess að draga fram lífið; að hún ól
eftir nokkra mánuði son — það ert þú —, sem eg skírði
og nefndi Leonis Renzo í kirkjubókinni. Eg nefndi þig
Leonis eftir dýrling þeim, sem kirkjan min er helguð, og
Renzo eftir afa þínum. Móðir þín dó, þegar þú varst sjö
ára, og þá var hún að eins tuttugu og fimm ára að aldri.
Hún sagði mér aldrei, ekki einu sinni í skriftastólnum,
eitt einasta orð um neitt af því, sem fyrir hana hefði
komið þennan eins árs tíma, sem hún var að heiman, né
heldur nafn, heimili eða stöðu mannsins, sem er faðir
þinn. Hún var yndisleg stúlka í öllu framferði og sýndist
góðum gáfum gædd, en mér fanst alt af, að hún mundi
ekki vera fullkomlega með sjálfri sér eftir þennan atburð.
Það var einhver ógurleg sorg, sem lá á hjarta hennar
eins og farg, og auk þess vildi svo til, að hún frétti al-
veg að óvörum um hinn hryllilega dauðdaga föður sins;
henni var sagt frá því af hjarðsveini, sem hún hitti á
leiðinni heim, og eg er hræddur um, að alt þetta hafi
trufiað hana, þó að hún yrði ekki beinlínis vitskert.
Hvernig sem öllu þessu var farið, þá er það víst, að
ómögulegt var að fá upp úr henni eitt einasta orð um
föður þinn. Eg er hér um bil viss um, að þessi elskhugi
hennar hefir með einhverjum vélum stolist frá henni. Ef
til vill hefir hann verið aðalsmaður og því ekki mátt
bindast henni. Þeir fáu, sem sáu hann, af sveitafólki hér
sögðu, að hann hefði litið út eins og tiginn aðalsmaður.
En það segir það nú reyndar um alla, sem láta pening-
ana fjúka. Þetta er nú alt og sumt, sem eg get frætt þig
um í þessu efni, kæri andlegi sonur minn!
Ef eg vissi eitthvað meira, jafnvel þótt það væru
*8