Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1929, Blaðsíða 60
60
Um stofnun mentaskóla 1 Skálholti
holt yrði aftur hið fegursta og mesta höfuðból í sveitum
íslands, eins og pað var fyrrum í sjö til átta aldir.
En þá er kostnaðurinn.
E>að er von vor að ekki purfi að íþyngja ríkissjóði
nje skattgjaldendum landsins að neinum mun með menta-
skóla pessum. Dvert á móti á skólinn að spara mönn-
um í prem fjórðungum landsins fje, þegar hann er kom-
inn á fót, líkt og mentaskólinn á Akureyri sparar nú
Norðlendingum kostnað.
í Skálholti er forngripur einn, hökull frá miðöldun-
um. Hann er hin mesta gersemi, eflaust einhver hinn
dýrasti og ágætasti forngripur, sem til er á íslandi, Út-
lendir menn, sem kunna að meta slíka gripi, segja hann
meira virði en alt Skálholt með búslóð og öllum peim
húsum, sem par eru.
Dað er gjörsamlega misráðið, að geyma slíkan grip
í trjekirkju, og nota hann við hvert tækifæri, slíta honum
og fara gálauslega með hann. Slík gersemi á að vera
í Ðjóðmenjasafninu, geymd par vel og vandlega í skáp
með glerhurð fyrir.
Ef útlendir menn, sem unna slíkum menjagripum,
fengju að kaupa hökul pennan, mundu peir glaðir greiða
30000 kr. fyrir hann. Deir segja pað hneysu og smán,
hvernig slíkur hökull er geymdur.
Mörgum íslendingum er kunnugt, hvernig farið hef-
ur um gripi úr kirkjum. Menn hafa selt pá í laumi
o. s. frv. Slíkt parf aldrei að óttast á meðan hinn vand-
aði og staðfasti maður, sem nú er eigandi Skálholts, er
á lífi. Hann mundi aldrei gera slíkt, hvað sem í boði
væri. En enginn verður eldri en gamall.
Jeg mintist bæði á hökul þennan og alt petta mál-
efni við eiganda Skálholts í fyrra sumar. Hann kvaðst
vera fús á að gefa hökulinn eða andvirði hans til menta-