Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1967, Page 63
JÓHANNES SIGVALDASON:
Rannsóknir á brennisteinsskorti
í íslenzkum túnum
II. Tilraunir og athuganir með brennisteinsáburð
á tún sumarið 1967.
Fyrstu athuganir á brennisteinsskorti í íslenzkum túnum
voru gerðar seinni part sumars 1965, en tilraunir á túnum
nokkurra bænda sumarið 1966 sýndu ótvírætt, að brenni-
steinsskortur veldur allmiklu uppskerutjóni á vissum svæð-
um norðanlands. Niðurstöður tilrauna þeirra, sem fram-
kvæmdar voru sumarið 1966, sýndu (2), að uppskeruauki
var allverulegur eða sem næst 27 hkg hey/ha í Villingadal
í Eyjafirði fyrir 16 kg af brennisteini í gipsi.
Eins og drepið var á í grein þeirri, sem niðurstöður til-
raunanna frá því í fyrra eru birtar í, þá eru helztu orsak-
irnar fyrir því, að nú er tekið að bera á brennisteinsskorti
þessar:
1) Allmörg undanfarin ár hafa verið notaðar hér áburð-
artegundir, sem snauðar eru á brennistein.
2) Búfjáráburður er ekki borinn á allt túnið hjá hverjum
bónda. Verða þá frekast útundan tún, sem liggja langt frá
gripahúsum, gjarna nýræktir, sem sízt mættu þó án þess
vera að fá búfjáráburðinn. .
3) Mikil áburðarnotkun og þá sérstaklega mikið köfnun-
arefni eykur á hættuna á því að skortur verði á þeim nær-
ingarefnum, sem ekki eru borin á, en í þeim flokki er ein-
mitt brennisteinn.
Það sem reynt hefur verið að rannsaka sumarið 1967 og
5