Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1977, Blaðsíða 96
96
LANDSBÓKASAFNIÐ 1976
húsinu rými í kjallara undir mikið efni, er geyma verður um sinn í
kössum.
Fyrirsjáanlegt er, að safnið þarf aukið geymslurými utan safns, því
að hillurými í mörgum deildum safnsins er gersamlega þrotið.
Bókasafn Vestmannaeyja fékk um ársfjórðungsskeið að láni nokkra
tugi erlendra bóka, einkum ferðasögur, sagnfræði og ævisögur. Harald-
ur Guðnason bókavörður lét þess getið við bókaskil, að þær hefðu
verið mikið lesnar og vinsælar af þeim, sem lesa erlend mál.
SÝNINGAR Handritasýning stóð að vanda sumar-
mánuðina.
Seint í október var efnt til sýningar á ýmsum ritum Sameinuðu
þjóðanna í tilefni af því, að liðin voru 30 ár frá því er íslendingar
gerðust þátttakendur í þeim miklu samtökum.
I nóvember hófst sýning á ýmsu efni varðandi verkalýðsmál og
Alþýðusamband Islands, einkum á eldra skeiði þess, en 60 ára afmælis
sambandsins var minnzt um þessar mundir með margvíslegum hætti.
AÐSÓKN Hér fer á eftir skýrsla um notkun bóka og
handrita, um lesendafjölda, útlán og tölu
lántakenda:
Flokkur 1976
000 9 161
100 381
200 407
300 2 363
400 418
500 1 305
600 ............................... 661
700 279
800 3 088
900 3 323
Samtals 21 386
Handrit 3 740
Lesendur 14 133
Útlán (bóka og handrita) 1 395
Lántakendur 289