Morgunblaðið - 31.03.2001, Blaðsíða 78
FÓLK Í FRÉTTUM
78 LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EINHVERJU sinni var haft eftir Ólafi Lauf-
dal, veitingamanni á Broadway, í Morgun-
blaðinu að hann þyrfti ekki annað en að aug-
lýsa Karlakórinn Heimi í Skagafirði og
Álftagerðisbræður þá smekkfylltist húsið. Og
þannig fór það líka síðastliðið laugardags-
kvöld þegar Heimismenn luku vel heppnuðu
söngferðalagi um suðvesturhorn landsins með
skemmtikvöldi. Uppselt var á borðhaldið og
þeir sem komu aðeins á skemmtunina létu sér
ekki um muna að standa um allt húsið á með-
an þeir nutu skagfirskra tóna og gamanmála.
Lætur nærri að hátt í þúsund manns hafi ver-
ið á staðnum.
Söngferðalag Heimis suður yfir heiðar í
marsmánuði er orðiðfastur liður í starfsemi
kórsins. Hann hafði haldið tónleika á Akra-
nesi, í Grindavík og Langholtskirkju í
Reykjavík, auk þess sem söng við vígslu
hrossabúgarðs í Flóanum var stungið inn á
milli atriða.
Heimir og Álftagerðisbræður eru farnir að
laða að söngunnendur úr flestum landshorn-
um. Vitað er um marga hópa sem koma gagn-
gert til Reykjavíkur að skemmta sér þá helgi
sem Heimismenn eru á Broadway og ekki
þarf að fjölyrða að brottfluttir Skagfirðingar
koma einnig að sjá sína menn.
Allir gátu tekið undir
Að loknu borðhaldi hófst skemmtikvöldið á
því að fjölmargir landsþekktir menn „birtust“
á sviðinu í fylgd Jóhannesar Kristjánssonar
eftirhermu. Jóhannes var í hörkuformi og
ekki síður Guðni Ágústsson þegar „hann“ fór
að lýsa afurðum íslensku kýrinnar, hinnar
dásamlegu skepnu! Álftagerðisbræður; þeir
Sigfús, Pétur, Gísli og Óskar Péturssynir,
stigu næstir á svið og sungu nokkur lög við
undirleik Stefáns R. Gíslasonar, kórstjóra
Heimis. Bræðurnir stóðu fyllilega undir vænt-
ingum sem fyrri daginn og fóru skemmtilega
með lög á borð við Hamraborgina, Skjónu-
kvæði og O sole mio í skagfirskri útgáfu.
Það kom síðan í hlut kórmanna að enda
skemmtikvöldið og tóku þeir nokkur vel valin
lög af söngdagskránni undir stjórn Stefáns og
við píanóundirleik dr. Thomasar Higgerson. Í
einsöng og upp í kvartett með kórnum tóku
þátt þeir Einar Halldórsson, Birgir Þórð-
arson, Jón Hallur Ingólfsson og Guðmundur
Ragnarsson, auk bræðranna frá Álftagerði.
Fagnaðarlátum veislugesta á Broadway ætl-
aði aldrei að linna og lauk kórinn dagskránni
með lagasyrpu sem allir gátu tekið undir í
söng og klappi.
Að skemmtikvöldinu loknu tók við dans-
leikur með ókrýndum konungi sveiflunnar,
Geirmundi Valtýssyni, sem sá til þess að
menn gátu „tjúttað“ fram undir morgun.
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Sigfús, Óskar, Pétur og Gísli Péturssynir úr Álftagerði flytja hér Skjónukvæðið.
Heimir mætir
og húsið fyllist
Hinir skagfirsku söngmenn í Heimi, Álftagerðisbræður
og Geirmundur Valtýsson sjá til þess í mars á hverju
ári að Broadway troðfyllist. Björn Jóhann Björnsson
fylgdist með á skemmtikvöldi um síðustu helgi.