Morgunblaðið - 22.10.2005, Page 14
14 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
! !
"
!
!
"# $$ %
&'( " " #!") !* +,!!
# -
) .
!/ "# $$ %
01 2 3 !/ "# 2 %
!
# $
! ! % &'
() $ (&
> !#! !' (6
# ? >#
#! ===
á morgun
Fæstir sem
falla í stríði
eru hermenn
Skrautlegar jarðsprengjur eiga að höfða til
barna og gera líklegra að þau taki þær upp.
Strandflutningaskipið Jaxlinn hefur
verið selt til danska skipafyrirtækis-
ins Janus Andersen & Co. Einar
Vignir Einarsson, skipstjóri Jaxlsins
og talsmaður fyrirtækisins Sæskipa
ehf., segir reksturinn hafa gengið erf-
iðlega þrátt fyrir samning um gáma-
flutninga fyrir Eimskip. Sé um byrj-
unarörðugleika að ræða, sem öll
fyrirtæki standi frammi fyrir í fyrstu.
Forsvarsmenn leita nú kjölfestu-
samninga til að tryggja rekstur skips-
ins. Einar hefur stærra skip í sigtinu.
Einar fór út til Noregs í marslok á
síðasta ári og náði í Jaxlinn. Skipið
sinnti síðan flutningum frá Hafnar-
firði til Vestfjarða og einnig Norður-
lands þar til því var siglt til Danmerk-
ur í vikunni.
Að sögn Einars var reksturinn
þungur og ótraustur, sér í lagi þar
sem fyrirtækið hafði ekki bindandi
flutningasamninga við fleiri en Eim-
skip og hafi því verið mikið tap á
rekstrinum. Nú verði reynt að fá fleiri
hluthafa inn í fyrirtækið og tryggja
rekstrargrundvöllinn.
„Við höfum staðið okkur þokkalega
þó ég segi sjálfur frá,“ sagði Einar en
hann kom aftur til landsins á fimmtu-
dag eftir að hafa siglt Jaxlinum út.
„Samstarfið við Eimskip gekk mjög
vel og er enn í gangi. Það er fullur vilji
að halda þessu áfram,“ sagði Einar og
bætti við að Sæskip hafi nýtt skip í
sigtinu.
Jaxlinn var smíðaður árið 1978 og
tekur 18 tuttugu feta gáma.
Einar hefur augastað á skipi, sem
smíðað var árið 1984 og tekur 140
tuttugu feta gáma. Það hefur verið í
siglingum á Eystrasalti og er
skemmtileg skip, að sögn Einars.
Sagðist hann búast við að málin
skýrist fljótlega í næstu viku og ætti
að taka skamman tíma að fá nýja
skipið hingað til lands verði rekstr-
argrundvöllur tryggður.
Nýtt skip mun taka
við af Jaxlinum verði
reksturinn tryggður
Morgunblaðið/Golli
Strandflutningaskipið Jaxlinn hefur verið selt.
MENNTARÁÐ Reykjavíkur hefur
falið menntasviði að efna til um-
ræðu við fagfólk og foreldrasamtök
um hlutverk skólanna í umræðu og
fræðslu um kynferðisofbeldi gegn
börnum. Var þetta samþykkt á
fundi menntaráðs á fimmtudag.
Kannað verður hvort æskilegt
geti talist að skipa starfshóp með
fulltrúum úr ráðinu, frá mennta-
sviði, fulltrúum skólastjórnenda,
kennara og foreldra sem hefði það
hlutverk að leggja fyrir ráðið til-
lögur um hvernig skólarnir geti
gegnt hlutverki í þessu sambandi.
Til dæmis hvernig fræðslu sé þörf á
að fara með inn í skólana, hvernig
kennarar og annað starfsfólk skól-
anna sé í stakk búið að greina máls-
atvik tengd kynferðislegu ofbeldi
og takast á við þau.
Hlutverk skóla
í umræðu um
kynferðisofbeldi
RÉTTARHÖLDUM yfir karli og
konu, sem ákærð eru fyrir að bana
Gísla Þorkelssyni í bænum Boks-
burg í Suður-Afríku í júlí sl., hefur
verið frestað í annað sinn skv. suður-
afrískum fréttamiðli. Haft er eftir
saksóknara málsins að sakborning-
arnir, Willie Theron og Desree Lo-
uise Oberholzer, sem eru í lögreglu-
varðhaldi, muni koma fyrir dóm í
næstu viku og þá verði ákveðið hve-
nær málsmeðferð hefst fyrir dómi.
Krufning leiddi í ljós að Gísli var
skotinn í höfuðið. Theron og Ober-
holzer eru ákærð um morð, þjófnað,
fjársvik og að hindra framgang rétt-
vísinnar.
Manndrápsmál-
inu í S-Afríku
frestað öðru sinni