Morgunblaðið - 22.10.2005, Page 18
18 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu um 7,8 milljörðum
króna, þar af voru viðskipti með
hlutabréf fyrir um 1,6 milljarða. Mest
viðskipti voru með bréf KB banka,
um 758 milljónir króna.
Mest hækkun varð á bréfum KB
banka, 1,5%, en mest lækkun varð á
bréfum Flögu, 3,7%.
Úrvalsvísitala aðallista hækkaði
um 0,64% og er hún nú 4.590,78
stig.
KB banki
hækkaði mest
● DÆGURVERÐ á 95 oktana blý-
lausu bensíni heldur áfram að lækka
á heimsmarkaði og við lokun mark-
aðar í Rotterdam í fyrradag kostaði
tonnið 552 dollara. Lækkaði það um
11 dollara frá deginum áður. Þetta er
lægsta verð á bensíni síðan 3. júlí sl.
en þá kostaði tonnið 548 dollara.
Verð á hráolíu hefur einnig lækkað
verulega á síðustu vikum en eins og
komið hefur fram náði það um 70
dollurum á fatið fyrir ekki svo löngu
síðan. Um miðjan dag í gær kostaði
fatið af hráolíu af Brent-svæðinu í
Norðursjó 56,29 dollara en á Nymex-
hrávörumarkaðnum í New York kost-
aði fatið 59,45 dollara. Er það í fyrsta
skipti í þó nokkurn tíma sem fatið fer
niður fyrir 60 dollara á Nymex.
Enn lækkar bensín
á heimsmarkaði
● ÁLVERÐ á markaði í London fór
upp í 2.000 dollara á tonnið í vikunni
og hefur ekki verið hærra síðan í
febrúar, en þá hafði ekki sést jafn
hátt álverð í mörg ár. Eftirspurn eftir
áli er gríðarleg, að því er fram kemur
í grein Financial Times, en talið er að
þörfin á heimsmarkaði fari úr 31
milljón tonnum á þessu ári upp undir
35 milljónir tonna árið 2007. Í sömu
grein er sagt frá fjárfestingu fyrirtæk-
isins Vedanta í nýju 400 þúsund
tonna álveri á Indlandi. Fyrir er Ved-
anta með tvö álver í landinu en þessi
fjárfesting kemur fyrirtækinu í hóp
tíu helstu álframleiðenda í heimi.
Stærstir eru Alcoa og Alcan.
Álverð ekki hærra
í átta mánuði
,
- . /
- .01+
/02 3 !
&' ()* * (
!
"
# $%
& $% '$
()'$
*+ $! $
*!$
"$% '$ & $%
,-
.&
./0)1 21'$
3
+ '
,
/) & $%
#/ )2$
4- $%
, $
56-2
7! 2
89
$ 8- -/
:;!! $!/ ) ) $
< $$ ) $
- ./
- % =;22)
"$% >/ & $% !"#
. 1? ! .) $%
:@ @
01 23
4A=B
.>)
) -)
0
0
0
0
0
0
0
0
0
-; $! 1
; ) -)
0 0
0
0
0 0
0 0
0
0
0
0
0
0
0 0
0
0
0
0
0
0
0
C DE
C DE
C 0
DE
0
0
0
C 0
DE
C DE
0
C 0DE
0
0
C DE
C DE
0
0
0
0
C DE
0
C 0DE
0
0
0
0
0
0
0
0
#- % )
%! $
: ') > %! F
* .
0
0
0
0
0
0
0
0
0
< ) > +G
:# H
!$ 2 %
)
0
0
0
0
0
0
0
0
0
:#0F <-!$ ; ')
● VÍSITALA íbúðaverðs á höfuðborg-
arsvæðinu, sem Fasteignamat rík-
isins reiknar út, hækkaði um 0,9%
frá fyrra mánuði. Undanfarna 3
mánuði hækkaði vísitalan um 3,7%,
um 12,6% síðustu 6 mánuði og um
37% síðustu 12 mánuði. Í ágúst
lækkaði vísitalan um 0,6%.
Fram kemur í Morgunkorni Grein-
ingar Íslandsbanka í gær að þrátt
fyrir hækkunina í september hafi
dregið úr hækkun íbúðaverðs á höf-
uðborgarsvæðinu að undanförnu.
Íbúðaverðið hafi hækkað um aðeins
0,3% síðustu tvo mánuði sam-
anborið við 2,7% hækkun síðustu
tvo mánuðina þar á undan. Hækk-
unin í september gefi þó til kynna
að enn sé þrýstingur til verðhækk-
unar á íbúðamarkaði þótt hann sé
mun minni en hann var á fyrri hluta
árs.
Greining Íslandsbanka segir að
ýmsar skýringar séu á því að dreg-
ið hafi úr hækkun íbúðaverðs að
undanförnu. Bankarnir virðist til
dæmis hafa dregið nokkuð úr lána-
framboði sínu á síðustu mánuðum
með því að herða reglur um lánveit-
ingar vegna íbúðakaupa frá því sem
var fyrr á árinu, þegar samkeppnin
á lánamarkaði var hvað hörðust.
Íbúðaverð hækkaði
í september
ÍSLENSKA yfirtökunefndin gæti
þurft að setja strangari viðmiðunar-
reglur en gilda í Bretlandi um það
hvenær samstarf eða samvinna hlut-
hafa í fyrirtæki sé þess eðlis að yfir-
tökuskylda skapist.
Þetta sagði Noel Hinton, varafor-
maður bresku yfirtökunefndarinnar,
á ráðstefnu sem haldin var í gær um
yfirtökur skráðra félaga og starf-
semi yfirtökunefnda. Smæð íslenska
samfélagsins, þar sem „allir eru í
sama Rótarýklúbbnum“, eins og
einn ráðstefnugesta orðaði það, hef-
ur áhrif á það hvernig meta á tengsl
fólks þegar að yfirtökum kemur.
Hundsa þá sem virða
ekki nefndina
Í ávörpum Hintons og Viðars Más
Matthíassonar, formanns íslensku
yfirtökunefndarinnar, var einnig
tekið á lagalegri stöðu slíkra nefnda,
en yfirleitt stofna markaðsaðilar yf-
irtökunefndir en ekki opinberir að-
ilar og skortir þær því allar þving-
unar- og viðurlagaheimildir.
Spurningin sem vaknar er hvernig
yfirtökunefndir geti yfirhöfuð starf-
að þegar markaðsaðilar geta, að því
er virðist, virt álit nefndanna að vett-
ugi.
Í Bretlandi komu stofnaðilar sér
saman um að hundsa þá sem ekki
sinntu álitum nefndarinnar þar í
landi. Segir Hinton að þessum
óformlegu viðurlögum hafi aðeins
Strangari viðmið
um yfirtökuskyldu?
Morgunblaðið/Golli
Hundsun Yfirtökunefndir geta aðeins beitt óformlegum viðurlögum sé
ekki farið að tilmælum þeirra og er hundsun eitt þeirra.
verið beitt einu sinni, en vissan um
að þau séu til staðar haldi mönnum í
skefjum.
Viðar segir íslensku nefndinni það
nauðsynlegt að slíkur stuðningur sé
til staðar frá stofnaðilum yfirtöku-
nefndar, til að mynda með þeim
hætti að stofnaðilar veiti þeim enga
aðstoð, t.d. við fjármögnun, sem ekki
fari að tilmælum nefndarinnar.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ICELANDAIR hefur skipt um
þjónustuaðila á flugvöllunum í Osló,
Stokkhólmi og Kaupmannahöfn,
eftir að hafa sagt upp samningum
sínum við SAS. Þjónustan sem um
ræðir er afgreiðsla farþega og far-
angurs fyrir flug félagsins. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá
Icelandair.
Þar segir að í Kaupmannahöfn og
í Osló verði afgreiðsla farþega og
farangurs hjá Servisair. Við þessa
breytingu flyst innritun í af-
greiðslubyggingu 2 á Kastrup-flug-
velli í Kaupmannahöfn en í dag er
hún í byggingu 3. Innritun í Osló
verður á sama stað.
Í Stokkhólmi verður afgreiðsla
farþega og farangurs hjá Nordic
Aero. Innritun verður í sömu bygg-
ingu og hingað til hefur verið.
Á undanförnum árum hefur Ice-
landair keypt þessa þjónustu af
flugvallarþjónustu SAS-flugfélags-
ins en að sögn Guðjóns Arngríms-
sonar, upplýsingafulltrúa FL
Group, hafa þessar breytingar ekk-
ert með vangaveltur um framtíð
samstarfs dótturfélaga FL Group
við SAS. Hann segir að þetta hafi
verið í farvatninu í einhverjar vikur
en eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu 29. september síðastlið-
inn ætlar SAS að segja upp 300
starfsmönnum, meðal annars vegna
þess að félagið missti samning við
Icelandair.
Í tilkynningu Icelandair kemur
fram að farþegar á viðskiptafarrými
fái áfram aðgang að betri stofum
SAS á flugvöllunum.
Icelandair skiptir
um þjónustuaðila
á Norðurlöndum
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
LANDSBANKI Íslands hefur tekið
þá ákvörðun að lækka hámark
íbúðalána sinna úr 90% í 80%.
Bankinn til-
kynnti þetta í
gær.
Í tilkynning-
unni segir að
ákvörðunin sé
tekin í ljósi þess
að aðstæður á
fasteignamarkaði séu að breytast
og að ekki sé gert ráð fyrir að
áframhald verði á þeim hröðu
verðhækkunum sem átt hafa sér
stað að undanförnu. Við slíkar að-
stæður megi lítið út af bregða hjá
lántakendum til þess að fjárhagur
þeirra raskist verulega, sérstak-
lega þar sem um verðtryggð lán
sé að ræða.
Grípur Landsbankinn til þessara
aðgerða til að „draga úr hættu á
því að viðskiptavinir bankans lendi
í þeirri stöðu að lán þeirra verði
hærri en markaðsverðmæti eign-
arinnar.“
Bankinn segist einnig gera
þetta til að slá á þenslu í þjóð-
félaginu og styðja Seðlabankann í
því markmiði að halda verðbólgu í
skefjum og viðhalda efnahags-
legum stöðugleika.
„Að mati bankastjórnar Lands-
bankans hafa bæði bankinn og við-
skiptavinir hans hagsmuni af því
að það markmið nái fram að
ganga,“ segir í tilkynningu Lands-
bankans.
Landsbank-
inn lækkar
hámark
íbúðalána
HAGNAÐUR af rekstri Nýherja á
þriðja ársfjórðungi nam 4,3 milljón-
um króna eftir skatta en var 36,3
milljónir króna á sama ársfjórðungi
á síðasta ári. Hagnaður félagsins fyr-
ir fjármagnsgjöld og
afskriftir í ársfjórð-
ungnum (EBITDA)
var 29,4 milljónir
króna en var 72,9 milljónir króna í
sama fjórðungi árið áður.
Rekstrartekjur fjórðungsins
námu 1.366 milljónum króna en voru
1.326 milljónir króna á sama fjórð-
ungi árið áður og hækkuðu því um
3%. Sala hugbúnaðarleyfa minnkaði
á milli fjórðunga en önnur vörusala
jókst um 4% og þjónustutekjur juk-
ust um 32% á milli fjórðunga.
Tap af rekstri dótturfélaga nam
tæpum 11 milljónum króna. Bókfært
eigið fé Nýherja í lok fjórðungsins
nam 1.256 milljónum króna og er
eiginfjárhlutfall 47,7%.
Aukið hlutafé
Stjórn Nýherja samþykkti nýlega
að hækka hlutafé félagsins um 10
milljónir króna að nafnvirði. Í til-
kynningu til Kauphallarinnar segir
að hlutaféð verði nýtt til að efna
samning við seljendur Applicon AS
sem Nýherjasamstæðan samdi um
kaup á í byrjun þessa mánaðar.
Útgáfugengi hlutanna er 13,25
krónur/hlut og er söluverð hlutafjár-
ins því 132,5 milljónir króna. Jafn-
framt nýtir Nýherji eigin hluti að
nafnverði 664.440 í sama skyni miðað
við sama gengi.
Nýherji hagnast um
4,3 milljónir króna
FARÞEGAR Icelandair í september
voru tæplega 132 þúsund og fjölgaði
þeim um 14,7% frá því í september í
fyrra, en þá voru þeir 115 þúsund.
Sætanýting félagsins í mánuðinum
var 79% og hækkaði um 2,8 pró-
sentustig frá fyrra ári. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá félaginu.
Frá áramótum hefur farþegum
Icelandair fjölgað um 14,5% og eru
þeir rúmlega 1,2 milljónir. Sætanýt-
ing hefur batnað um 2,5 prósent og
er á fyrstu níu mánuðum ársins
78,2%.
Farþegum Flugfélags Íslands í
innanlandsflugi fjölgaði um 6% í
september og voru þeir rúmlega 28
þúsund. Þeim hefur fjölgað frá ára-
mótum um 3,5%. Fluttum tonnum
Icelandair Cargo fjölgaði um 11,7%
frá fyrra ári og voru þau rúmlega
3.200 í mánuðinum. Þeim hefur
fækkað á fyrstu níu mánuðum ársins
um 0,1%.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair Group, segir fjölgun farþega
hjá Icelandair í september, og það
sem af árinu, afar ánægjulega. „Það
var tekin ákvörðun um að auka sæta-
framboð Icelandair mikið fyrir árið,
og salan hefur gert gott betur en að
fylgja því eftir, þannig að sætanýting
er 2,5 prósentustigum betri en í
fyrra, sem er mjög jákvætt,“ segir
Jón Karl í tilkynningu til Kauphallar
Íslands.
Farþegum fjölgar um 14,7%
5 %I
.J8
D
D
:.=
K
L
D
D
A
A
7,L
D
D
*L
5 -
D
D
4A=L KM ($-
D
D