Morgunblaðið - 22.10.2005, Síða 65
Salthúsið | Hljómsveitin Tilþrif spilar.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Sér-
sveitin skemmtir. Húsið opnað kl. 22, frítt
inn til miðnættis.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Haustfagnaður
Breiðfirðingafélagsins verður í Breiðfirð-
ingabúð, Faxafeni 14, kl. 22–03. Hjóm-
sveitin Klassík leikur fyrir dansi.
Fundir
ADHD-samtökin | Fundur um málefni full-
orðinna félagsmanna með adhd verður
haldinn að Háaleitisbraut 11, 4. hæð, kl. 11–
13. www.adhd.is.
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Svæð-
isfundur Reykjavíkursvæðis verður haldinn
í safnaðarheimili Áskirkju kl. 11 14.30.
KFUM og KFUK | Málfundur verður í fé-
lagsheimilinu kl. 11–13 á Holtavegi 28. Er-
indi flytja Elísabet Haraldsdóttir hjúkr-
unarfræðingur og Marteinn Steinar
Jónsson sálfræðingur. Aðgangur er ókeyp-
is og öllum heimill.
OA-samtökin | OA-fundur fyrir matarfíkla
kl. 11.30–12.45, í Gula húsinu, Tjarnargötu
20. Nýliðamóttaka kl. 11.
Reykjavíkurdeild SÍBS | Aðalfundurinn
verður haldinn í Síðumúla 6, fundarsal
SÍBS, 25. okt. kl. 15.
Fyrirlestrar
Háskólabíó | Fyrirlestur í tilefni af ári eðl-
isfræðinnar verður kl. 14 í sal 2. Þá flytur
Þorsteinn Þorsteinsson fyrirlesturinn Líf í
geimnum? M.a. verður fjallað um leitina að
lífi á Mars og annars staðar í sólkerfinu og
sagt frá nýjum geimsjónaukum o.fl.
Oddi – félagsvísindahús HÍ | Haukur I.
Jónasson flytur fyrirlesturinn Veit andinn
af efninu? þar sem hann mun sýna fram á
hvernig nokkrir af kenningasmiðum sál-
greiningarstefnunnar líta meðvitund
mannsins, tilurð hennar og þróun bæði í
mannkynssögunni og í lífi okkar sem ein-
staklinga. Fyrirlesturinn er kl. 14–15.
Raunvísindadeild HÍ | Hafrún Eva Arn-
ardóttir heldur fyrirlestur um verkefni sitt
til meistaraprófs í næringarfræði 25. okt.
kl. 12.20 í stofu 158 í VR–II við Hjarð-
arhaga. Fyrirlesturinn nefnist: Mataræði
og holdafar 9 og 15 ára Íslendinga.
Námskeið
Gigtarfélag Íslands | 3ja kvölda fræðslu-
námskeið fyrir fólk með iktsýki/liðagigt
hefst 24. okt. Uppl. og skráning í síma
5303600.
Háskóli Íslands | Námskeið Endurmennt-
unnar Háskóla Íslands og Vinafélags Ís-
lensku óperunnar fara fram 25. okt., 1. nóv.
og 8. nóv.; Fyrirlestrar í húsnæði Endur-
menntunnar. Kennari er Gunnsteinn Ólafs-
son. Nánari uppl.á www.endurmennt-
un.hi.is og www.opera.is.
Kópavogsdeild RKÍ | Námskeiðið Slys á
börnum verður 24. og 26. október kl. 19–
22 í Hamraborg 11. Þátttakendur læra að
þekkja varnir gegn slysum á börnum, or-
sakir slysa almennt o.fl.
Rauði kross Íslands | Heimsóknarþjón-
ustunámskeið verður 24. okt. kl. 18–21 í
húsnæði Reykjavíkurdeildar, Laugavegi
120. Námskeiðið er fyrir fólk sem hefur
áhuga á að kynna sér og/eða taka þátt í
heimsóknarþjónustu Rauðakrossdeilda á
höfuðborgarsvæðinu. Nánari uppl. og
skráning í síma 565 2425/864 6750 eða
á netfangið jon@redcross.is.
ReykjavíkurAkademían | Hvernig eiga
uppteknir afar og ömmur að rækta sam-
bandið við barnabörnin? Umsjón: Jón
Björnsson sálfræðingur. Námskeiðin verða
26. og 2. nóv. kl. 20–22. Sjá nánar:
www.akademia.is.
Ráðstefnur
Hótel Loftleiðir | Ráðsfundur og náms-
stefna I.ráðs ITC verður kl. 10 á Hótel Loft-
leiðum. Skráning og uppl. arb@visir.is og í
síma 8628465.
OA-samtökin | Helgina 28.–30. október
verður haldin OA-ráðstefna í Kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut 58, Reykjavík. Nán-
ari uppl. er að finna á heimasíðu samtak-
anna, www.oa.is.
Orkustofnun | Orkustofnun stendur fyrir
ráðstefnu um umhverfiskostnað fimmtu-
daginn 27. október kl. 8.30–15. Öllum er
heimill aðgangur að kostnaðarlausu en
skráning er nauðsynleg. Nánari uppl. og
skráning á www.os.is eða í síma 5696000.
Markaður
Hallveigarstaðir | Bandalag kvenna í
Reykjavík efnir til flóamarkaðar og hluta-
veltu í dag og á morgun kl. 13–18 á Hall-
veigarstöðum við Túngötu 14. Til styrktar
Starfsmenntunarsjóði ungra kvenna.
Frímerkjasafnarar | Safnaramarkaður
verður í félagsheimili Félags frímerkjasafn-
ara í Síðumúla 17, 2. hæð, 23. okt. kl. 13–16.
Uppákomur
Tæknihornið | Tæknihornið er eins árs og í
tilefni þess ætla mæður okkar að halda af-
mælisveislu, baka vöfflur og bjóða gestum
og gangandi að samfagna okkur. Afmælið
verður haldið í dag, fyrsta vetrardag, kl.
12–16.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 65
MENNING
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
frá kl. 13 vegna kvennafrídags. Nánari
uppl. í síma 568 3132.
Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi | Fé-
lagsvist kl. 13 í Sjálfstæðishúsinu,
Hlíðarsmára 19 (við hlið Sparisjóðs
Kópavogs). Góð verðlaun og heild-
arverðlaun eftir 4 skipti. Spilað verð-
ur 22. okt., 5. nóv., 19. nóv. og 3. des.
Stjórnendur: Bragi, Arnór og Guðni.
Vinabær | Félagsvist og dans verður í
Vinabæ, Skipholti 33, kl. 20. Að lok-
inni spilamennsku verður dansað
fram eftir nóttu. Fjölmennum og tök-
um með okkur gesti. Félagsstarf SÁÁ.
Kirkjustarf
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund kl. 20, www.gospel.is.
Kirkjuskólinn í Mýrdal | Munið sam-
veru í Víkurskóla kl. 11.15–12. Söngur,
gleði og gaman. Brúðuleikhús o.fl.
Kirkjuskólinn í Skaftárhreppi | Sam-
vera fyrir börn í Skaftárhreppi kl.
13.30 í Minningarkapellunni á Kirkju-
bæjarklaustri. Ath. tímasetninguna.
Selfosskirkja | Alþjóðleg bangsavika
bókasafna er framundan og fáum við
heimsókn frá Bæjar- og héraðs-
bókasafninu á Selfossi miðvikud. 26.
okt. kl. 11. Gaman væri að börnin hefðu
bangsann sinn með.
Félagsstarf
Dalbraut 18–20 | Miðvikudag 3. okt.
kl. 14 kemur séra Bjarni Karlsson í
sönginn með Lýð Benediktssyni. Dal-
braut 21–27 býður alla velkomna á
handverksstofu sína alla virka dag kl.
8–16. Lokað verður á Dalbraut 18–20
frá kl. 13 á kvennafrídaginn.
Eskfirðingar og Reyðfirðingar | Eldri
borgarar frá Eskifirði og Reyðarfirði
búsettir í Reykjavík og nágrenni halda
árlegt vetrarkaffi sunnudaginn 23.
okt. kl. 15 í Félagsheimili eldri borgara,
Gullsmára 13, Kópavogi.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20,
Caprí–tríó leikur fyrir dansi. Árshátíð
FEB verður haldin 4. nóv. nk. í Ako-
gessalnum við Sigtún, fjölbreytt dag-
skrá. Skráning hjá FEB 588 2111.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Leikhúsferð, lagt af stað frá Garða-
bergi kl. 19.30, fyrir þá sem taka rút-
una.
Félagsstarf Gerðubergs | Mánud. 24.
okt. fellur niður kóræfing hjá konum í
tilefni dagsins. Miðvikud. 26. okt. kl.
14 leggur Gerðubergskór af stað í
heimsókn á Hjúkrunarheimilið Eir.
Fimmtud. 27. okt. kl. 13.15 „Kynslóðir
saman í Breiðholti“, félagsvist í sam-
starfi við Fellaskóla. Fimmtud. 3. nóv.
leikhúsferð í Borgarleikhúsið.
Hraunsel | Dansleikur fyrsta vetr-
ardag í Hraunseli laugard. 22. okt. kl.
20.30. Hljómsveit Guðmundar Stein-
gríms leikur fyrir dansi.
Hæðargarður 31 | Gönuhlaup alla
föstudaga kl. 9.30. Út í bláinn alla
laugardaga kl. 10. Fullkominn skiln-
aður 6. nóv. kl. 20. Lokað mánudag
RÚSSNESKI dansflokkurinn
Rossiyanochka kemur fram í Saln-
um, Tónlistarhúsi Kópavogs, og á
fjölskylduhátíð í Smáralind um
helgina í tilefni Rússneskrar
menningarhátíðar í Kópavogi. Í
flokknum eru um 200 atvinnudans-
arar á aldrinum 6–25 ára en þar af
koma tíu pör til landsins. Hóp-
urinn hefur hlotið athygli víða um
heim og dansar hans eru taldir
endurspegla einkenni rússnesku
þjóðarsálarinnar, skapsmuni og ást
þjóðarinnar á föðurlandinu.
Rossiyanochka-dansflokkurinn
hefur komið fram víðs vegar í Evr-
ópu, Bandaríkjunum og Kína og
bæði hlotið heiðurstilnefningar og
margs konar viðurkenningar.
Hann hefur hlotið fyrstu verðlaun
á alþjóðlegum danshátíðum í Búlg-
aríu, Danmörku, Rússlandi,
Frakklandi, Kína og Búlgaríu.
Listrænn stjórnandi Rossiya-
nochka og aðalballettmeistari er
Alexander Nosikhin. Nadejda No-
sikhina er ballettmeistari hópsins
sem hingað kemur.
Sýningar Rossiyanochka-dans-
flokksins verða í Salnum í dag og á
morgun kl. 17. Flokkurinn kemur
auk þess fram á rússneskri fjöl-
skylduhátíð í Vetrargarðinum í
Smáralind í dag.
Rússneskur dans í Kópavogi
Lalli lævísi.
Norður
♠G63
♥KD7 S/Enginn
♦Á53
♣Á1076
Vestur Austur
♠Á5 ♠109742
♥G963 ♥10542
♦D104 ♦62
♣KDG8 ♣95
Suður
♠KD8
♥Á8
♦KG987
♣432
Vestur Norður Austur Suður
Lauria Duboin Versace Bocchi
– – – 1 grand *
Pass 3 grönd Allir pass
* 12–14 HP
Lorenso Lauria var enn eina ferðina í
banastuði í keppninni um Evrópubik-
arinn í Brussel. Þeir félagar, hann og
Alfredo Versace, voru langefstir í But-
ler-reikningi mótsins, nokkru á undan
samsveitungum sínum í landsliðinu –
þeim Georgio Duboin og Norberto
Bocchi. Ítalir áttu tvær sveitir í Brussel
og er spilið að ofan frá innbyrðis við-
ureign þeirra í undanúrslitum. Og það
verður að segja hverja sögu eins og hún
er – Lorenso fór illa með vin sinn Nor-
berto.
Lauria valdi að spila út laufdrottn-
ingu, frekar en kóngnum. Ástæðan var
öðrum þræði sú að kóngurinn hefði lof-
að sterkari lit, en fyrst og fremst var til-
gangurinn sá að villa um fyrir sagnhafa.
Vestur á það mikinn styrk að hann býst
ekki við neinni hjálp frá makker og því
kemur varla að sök þótt austur vaði í
villu og svíma.
Bocchi drap strax á laufás, tók tíg-
ulás og svínaði gosanum. Lauria fékk
slaginn á tíguldrottningu og spilaði …
laufáttu!
Bocchi átti von á því að kóngurinn
væri annar í austur og dúkkaði. Versace
fékk þannig slag á laufníu og svo komst
Lauria inn á spaðaás til að taka tvo slagi
í viðbót á KG í laufi. Einn niður.
Sigurður Sverrisson hitti naglann á
höfuðið þegar hann gaf Lorenso Lauria
íslenska heitið Lalli lævísi.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Laugavegi 54, sími 552 5201
Póstsendum
Síðasti dagur
1.000 kr. tilboð
* pils
* peysur
* gallabuxur
* jakkar
* bolir - og margt fleira
* 20% afsláttur
af öðrum vörum
Árshátíð Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
verður haldin 4. nóvember
í Akogessalnum við Sigtún
Dagskrá:
Fjölbreytt skemmtiatriði s.s. hátíðarræða, kórsöngur,
leikþáttur, danssýning og almennur söngur.
Hljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi.
Þriggja rétta hátíðarmatseðill.
Verð kr. 4.200.
Miðar seldir á skrifstofu
félagsins í síma 588 2111
ÁSA Ólafsdóttir opnar sýningu í
galleríi húnoghún í dag kl. 15.
Verkin eru unnin með blandaðri
tækni á striga. Rauði þráðurinn í
myndverkunum eru pöntunar-
seðlar frá bændum árið 1890 til
verslunar Lefolii á Eyrarbakka.
Opnunin er hluti af dagskrá vetr-
arhátíðar Skólavörðustígsins.
Ása Ólafsdóttir stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
1969–1973 og við Konstindustr-
iskolan Göteborgs Universitet
1976–1978.
Hún er í Félagi íslenskra mynd-
listarmanna (FÍM) og í Sambandi ís-
lenskra myndlistarmanna (SÍM).
Árið 2002 hlaut hún styrk úr sjóði
Listahátíðar.
Hún hefur haldið fjölda einka-
sýninga og tekið þátt í samsýn-
ingum heima og erlendis.
Ása Ólafsdóttir í galleríi húnoghún
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
ART Gallery Sjöfn Har.,
Skólavörðustíg 25a, kynnir
verk skosku listakonunnar Is-
hbel Macdonald D.A. í dag kl.
14.00 á Skólavörðustígshátíð-
inni.
Ishbel fæddist í Skotlandi
og lauk myndlistarnámi við
Listháskólann í Glasgow
1980. Undanfarin 20 ár hefur
Ishbel búið á norðurströnd
Skotlands í Sutherland og
opnaði þar eigið stúdíógallerí
1987. Verkin sem Ishbel sýnir
hér á landi eru silkiþrykk,
innblásin af dulmagnaðri
náttúrufegurð Norður-Skot-
lands og fuglalífi. Ishbel hef-
ur haldið fjölmargar sýningar
í Skotlandi og verk hennar er
víða að finna í einkaeign jafnt
sem í opinberum stofnunum í
heimalandi hennar sem og er-
lendis.
Skosk
listakona
kynnt