Réttur


Réttur - 01.02.1919, Page 4

Réttur - 01.02.1919, Page 4
6 Réttur. fyrir misskilning, að eg lít svo á, að hér á landi séu hlut- fallslega fleiri á milli flokka en annarsstaðar. Enda er flokka- skiftingin tæplega eins ákveðin hér eins og í öðrum löndum. En eg mun síðar reyna að sýna fram á, að h'ér sé þó full ásíæða til að tala um misjafna menn, og að jafnaðarhugsjón- in, sönn jafnaðarhreyfing, eigi fult erindi til okkar eins og til annara. Mismunurinn á milli þessara flokka verður eftir því meiri, sem lægri stéttirnar þuifaað berjast harðari baráttu, til að afla sér viðurværis. Peir, sem í þeim flokknum lenda, færast því fjær því að standa hinum jafnfætis. Djúpið á milli flokkanna stækkar, eftir því sem meira þrengir að kjörum verkalýðsins. Þegar vöxtur og viðgangur einhvers þjóðfélags stefnir í þá átt, að gera alþýðu manna ósjálfbjarga gagnvart þeim, sem framleiðslutækin hafa í höndum, og ef máttur auðvaldsins er notaður til að klípa af þeim skamti, sem verkafólkið ber frá borði, þá er við því að búast, að loks hefjist hreyfing. Og ef mikið kveður að því, að öðrum flokknum sé gert erfitt fyrir með að afla sér lífsnauðsynja sinna, þá er þess að vænta, að hreyfingin verði sterk, alveg eins og stormurinn, þegar snögg og mikil þrýsting legst á á einum stað. En er það þá einungis það, sem muninum veldur, að í öðrum flokknum fá menn vinnu sína ver launaða, og hafa fyrir þá sök minna fyrir sig að leggja en í hinum? Nei, — það er miklu meira, sem á milli ber. Stéttamunurinn á sér miklu dýpri rætur en það, að hann falli um sjálfan sig þó jafnvægi kæmist á efnahag manna. Til þess að mennirnir geti orðið jafnir, og geti fundið, að þeir eru allir jafnir, þá verða lifnaðarhœttir þeirra að verða svo líkir, að engum þyki of »fínt« handa sér það sem annar hefir um hönd, og að engum þyki neitt ofgróft eða niðrandi fyrir sig, sem annar temur sér eða verður að sætta sig við. Og það þarf meira en þetta. Hugsunarhátturinn verður líka að færast í það horf, að hver maður telji sér skylt að reyna að skilja alla, sem eitthvað hafa við hann að ræða, og að enginn telji sig of

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.