Réttur - 01.07.1928, Qupperneq 10
138
KOMANDI ÞING
[Rjettur
að gegna sem fyrr. Annarsvegar örfá auðfjelög, hins-
vegar sumpart smá- og stór-útgerðin, sumpart fjöldi
neytenda. Og hvað reksturskostnað snertir, þá er það
víst, að því meira sem safnast undir eina Landsversl-
un, því meiri möguleikar eru á, að hægt sje að spara
stórkostlega á rekstri öllum og afla landssjóði fjár, en
lækka í staðinn tolla á nauðsynjum.
Það er í rauninni furðulegt, að verklýðsflokkur skuli
þurfa að hamra á málum þessum og reyna með öllu
móti að fá Framsókn til að fylgja þeim fram, þar sem
mál þessi eru enganveginn sjerhagsmunamál verka-
lýðsins og í eðli sínu einmitt jafn mikið miðstjettar-
mál, sem Framsókn því ætti að beita sjer fyrir sam-
kvæmt stjettareðli sínu. Sú hugsun vinnur sem sje sí-
felt á hjá íslensku þjóðinni, sem á alt sitt undir versl-
un við útlönd komið, að verslun með lífsnauðsynjarn-
ar sje einfaldlega altof ábyrgðarmikil til að láta hana
vera í höndum einstaklinga, sem eingöngu reka hana
í gróðaskyni; ríkinu bei'i því að taka utanríkisversl-
unina að sjer, líkt og áður skóla, póst, síma, og ýmsar
samgöngur. Það er því engin bylting, sem framin yrði
með framkvæmd þessara mála, engin þjóðnýting held-
ur, aðeins aukning ríkisrekstrar í auðvaldsþjóðfjelagi,
en það er fyrirbrigði, sem sífelt vex í öllum helstu auð-
valdsríkjum. Það þarf því hvorki mikið hugrekki nje
djúpan skilning til að sjá nauðsyn þessa. Næsta þing
mun skera úr, í hve ríkum mæli þeir kostir finnast hjá
stj órnarstuðningsmönnum.
Kröfur verkalýðsins til næsta alþingis yrðu þær, að
einhver litur yrði sýndur á að tryggja verkalýðnum
einföldustu rjettindi þau, er stjettarbræður hans njóta
erlendis. Á síðasta þingi er ísland með erfiðismunum
að tryggja sjómönnum sínum, er það telur hina hraust-
ustu í heimi, 8 tíma hvíld i sólarhring, þegar aðrir eru
að ná 8 tíma vinnudegi. Til athlægis frammi fyrir sið-
uðum nágrannaþjóðum eru íslendingar fyrir slíkar