Réttur - 01.07.1928, Side 38
166
QR RÚSSLANDSFERÐ
[Rjettur
ferð um göturnar, mikið um bifreiðar, stórar og smá-
ar, og mikið um verslanir af ýmsu tagi, með stórum
gluggasýningum, en á því bar lítið í Leningrad.
Mikið af þessum verslunum er eign ríkisins, bæjar-
fjelagsins eða samvinnufjelaga, en sumar eru eign
einstakra manna. í Moskva er verslað afar mikið á
götum úti og á torgum. Er þar selt flest alt er nöfn-
um tjáir að nefna. Þessi verslun er að miklu leyti í
höndum einstakra manna, en samvinnufjelögin keppa
við þá, og leitast við að ná henni úr höndum þeirra.
Nú eru tæp 18% af allri innanríkisverslun Rússa í
höndum einstakra manna. Hefur sá hluti minkað jafnt
og stöðugt úr 44% árið 1923—24.
Við komum í bókaútgáfu ríkisins (Statsforlaget) og
áttum langt tal við forstöðumann þess. Er þar út gef-
inn helmingur allra bóka í Rússlandi, en hinn helm-
inginn gefa út einstakir menn eða samvinnufjelög.
Bækurnar eru yfirleitt ódýrar. T. d. þóttumst við sjá,
að vísindabækur væru yfirleitt fullum helmingi ódýr-
ari en á Norðurlöndum. Mörgum fræðibókum er út-
býtt ókeypis, eða fyrir mjög lítið verð, meðal bænda
og verkalýðs. »Bókaútgáfa ríkisins« er ekki háð rit-
skoðun, en öll önnur bókaútgáfa fjelaga og einstak-
linga er undir ríkiseftirliti. Við spurðum hvort það
væri satt að ekki væru gefnir út nema »valdir kaflar«
úr ritum Tolstoys. Þá hlógu Rússarnir og sýndu okkur
rit hans öll í nýrri, ódýrri útgáfu, sem mjer virtist
vandað til líkt og sagnaútgáfu okkar. Þá spurði ein-
hver hvort það væri satt, að Rússar gæfu ekki út rit
eftir heimspekinginn Kant. Rússarnir brostu aftur og
sögðu: »Nú á tímum vill enginn maður lesa Kant«. Við
því þagði spyrjandinn. Við spurðum hvaða höfundar
væru lesnir mest í Rússlandi. Af rússneskum höfund-
um voru þrjú fyrstu nöfnin: Maxim Gorki, Gladkov
(»Sement«) og Leonjew. Af útlendum rithöfundum
þessir: Jack London, Upton Sinclair, Hamsun, Conan