Réttur - 01.07.1928, Page 70
198 ATHS. MARX VIÐ GOTHASTEFNUSKRÁNA [Rjettur
legu vandamála, krefst verkalýðsflokkur jafnaðar-
manna í Þýskalandi þess, að stofnuð verði sósíalistisk
framleiðslusamvinnufjelög með ríkisstyrk undir lýð-
frjálsu eftirliti hins vinnandi lýðs. f iðnaði og land-
búnaði skulu stofnuð svo mörg samvinnufjelög, að þau
geti orðið uppistaðan í hinu sósíalistiska skipulagi allr-
ar vinnu.
Verkalýðsflokkur jafnaðarmanna í Þýskalandi krefst
þess, að ríkið hvíli á þessum grundvelli:
1. Almennur, jafn, beinn kosningarrjettur og kjör-
gengi, leynileg kosning og kosningaskylda fyrir alla
ríkisborgara, sem eru fullra 20 ára við allar kosningar
til þings, bæja- og sveitastjórna. Kosningadagur skal
vera sunnudagur eða hátíðisdagur.
2. Löggjafarvaldið sje beinlínis hjá þjóðinni. Þjóðin
taki sjálf ákvarðanir um frið og ófrið.
3. Almenn varnarskylda. Þjóðvörn í stað hers.
4. Afnám allra undantekningarlaga og þá fyrst og
fremst laganna um prentfrelsi, fjelög og samkomur.
Afnám allra laga, sem takmarka skoðana- og hugsana-
frelsi og frjáls vísindi.
5. Dómsvaldið hjá þjóðinni. ókeypis lögfræðisstörf.
6. Almenn og jöfn þjóðarmentun af ríkisins hálfu.
Almenn skólaskylda. ókeypis kensla í öllum menta-
stofnunum. Trúarbrögð sjeu einkamál.
Innan núverandi þjóðfjelags heimtar verklýðsflokkur
jafnaðarmanna í Þýskalandi:
1. Pólitísk rjettindi og frelsi í anda ofangreindra
krafa, að svo miklu leyti, sem auðið er.
2. Einn stighækkandi tekjuskattur fyrir ríki, bæja-
og sveitafjelög í stað núverandi skatta, og þó einkum í
stað óbeinu skattanna, sem hvíla á alþýðu.
3. ótakmarkað fjelagafrelsi.
4. Hæfilegur vinnutími daglega samkvæmt þörfum
þjóðfjelagsins. Bann við sunnudagavinnu.