Réttur - 01.07.1928, Page 133
Víðsjá.
Leo Tolstoj.
1828 — 9. september — 1928.
Eftir
A. Lunatsjarski, s
mentamálafulltrúa rússnesku ráðstjórnarlýðveldanna.
Tvent sameinaði Tolstoj í einni persónu: listamann-
inn og prjedikarann. Listamanninn, sem á sviði skáld-
sagnanna og leikritanna skapaði meistaraverk, sem
síðan hafa farið sigurför um heiminn; leikritin frá
einu leiksviði til annars, skáldsögurnar frá manni til
manns. Siðameistarinn, sem með brennandi orðum boð-
aði nýtt líf og nýja lífs tilfinningu, og rjeðist á það,
sem lifað var.
Einungis sem listamaður hefði Tolstoj efalaust hlot-
ið heimsfrægð; en þannig er vart hægt að hugsa sjer
hann, því að listaverk hans fela líka í sjer þá leit og
þær spurningar, sem svarað er í siðaprjedikunum hans.
Einungis sem siðameistari hefði Tolstoj án efa einnig
vakið eftirtekt margra; en aldrei hefði hann náð svo
sterkum áhrifum, sem raun varð á, ef ekki hefði sam-
einast hjá honum siðferðileg kenning og frábær lista-
gáfa.
Ef við lítum nánar á kenningu Tolstojs, og reynum
að meta þýðingu hennar fyrir þróun mannkynsins,
leynist okkur ekki, að víða vantar í hana samræmi.