Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 45
Rjettur] FYRSTA AR MITT SEM VERKAMAÐUR I R B 253
sig, er framleiði það sem henni sýnist, kaupi vörur
sínar eftir atvikum eða selji hverjum sem best býður
o. s. frv. Hún er aðeins ofurlítill þáttur hins mikla ráð-
stjórnariðnaðar, sem er stærsta framleiðslustofnunin á
jörðu hjer. Og hvernig er þá varið sambandi hennar
við þessa miklu heild?
Hún er einn þáttur »anilínhringsins«, sem er sam-
band svipaðra verksmiðja í Moskvu og hjeraðinu í
kring. Þessi hringur er undirdeild í »efna«-hringnum,
sem tekur yfir allan efnaiðnað R B, og hann er aftur
liður í allsherjarhring allra hinna margvíslegu iðn-
greina, sem lýtur stjórn »æðsta fjármálaráðsins«.
Framkvæmdarstjórnir þessara margvíslegu »hringa«
eru skipaðar eftir tillögum þeirra stjórnarvalda, sem
nálægust eru, með leiðbeining vísindamanna og sjer-
fræðinga. Stjórn okkar hrings er skipuð eftir tillögqm
iðnsambandsstjórnarinnar í okkar i'ylki.
Lesendum mun nú ljóst, að stjórn »efna«-hrings R B
fær frá undirhringunum ítarlegt yfirlit yfir alt er á-
hrærir efnaiðnað landsins, og getur hún því, í sam-
bandi við »verslunarráðuneytið« og hið mikla sam-
vinnusamband ».Centrosojus«, annast innkaup á hrá-
efnum innanlands og utan til efnaiðnaðarins, og söl-
una á því, sem efnaverksmiðjurnar framleiða.
Til þess að þessi mikla vjel verði ekki of þung og
seinlát í meðförum, er hverjum hring og undirhring,
jafnvel hverri verksmiðju, veitt allmikið frjálsræði og
frumkvaðarjettur. í verksmiðjunni okkar höfum við
t. a. m. okkar eigin byggingarskrifstofu, sem lætur
ekki einungis gera aðgerðir og breytingar á húsum,
heldur og gerir áætlanir um og lætur framkvæma hin-
ar dýru breytingar og byggingar á nýjum húsum, sem
jeg er búinn að geta um á undan, — en ber að sjálf-
sögðu ábyrgð gagnvart æðri stjórninni og — gagnvart
verkamannafjelaginu hjer í verksmiðjunni, sem ekki
hvað síst er fært um, að dæma um þessar sakir.