Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 91
Rjettur] STEFNUSKRÁ ALÞJÓÐAS. KOMMÚNISTA
299
anna, svo sem: byggingar, vélar og aðra búshluti, bú-
fjenað og fyrirtæki, er vinna úr landbúnaðarafurðum
(myílur, osta- og rjómabú, þurmjólkurverksmiðjur o.
s. frv.).
c) Stórbú, einkum fyrirmyndarbú og önnur, sem
hafa mikla atvinnulega þýðingu, skulu fengin í hend-
ur stofnunum öreigaalræðisins, til stjórnar og stofn-
unar ráðstjórnarbúa.
d) Nokkrum hluta þeirra landeigna, sem teknar hafa
verið eignarnámi, af jarðdrotnum og landeigendum,
skal fá í hendur bændum (fátækum bændum og að
nokkru leyti miðlungsbændum). Þetta á einkum við á
þeim stöðum, þar sem bændurnir unnu lönd þessi sem
leiguliðar og þau voru notuð þeim til atvinnulegrar
þrælkunar. Hvaða hluta jarðarinnar skuli fá bændum,
verður að ákveða eftir því, sem haganlegast þykir frá
atvinnulegu sjónarmiði og eftir nauðsyninni á að ein-
angra bændur (frá borgarastjettinni og' stórjarðeig-
endum) og vinna þá á band verkalýðsins.. Þessi hluti
jarðarinnar hlýtur því að verða mjög mismunandi
eftir hinum margvíslegu skilyrðum.
e) Banna skal kaup og sölu á jörðum, til þess að
jörðin verði í höndum bænda en komist ekki í klærnar
á auðmönnum og jarðabröskurum. Ef bann þetta verð-
ur traðkað, þarf að berjast látlaust gegn slíkum. lög-
brotum.
f) Berjast skal gegn okri og afnema skuldasanm-
inga, sem hvíla á okri, eyðileggja skuldir hins arð-
rænda hluta bændanna og losa fátæka bændur við að
greiða skatt o. s. frv.
g) Ríkið skal gera stórkostlegar ráðstafanir til að
efla framleiðslukrafta landbúnaðarins; raforkunýting
landbúnaðarins, dráttarvéla-smíði, framleiðslu tilbúins
áburðar, ræktun gæðamikils útsæðis og' búpenings á
ráðstjórnarbúunum, stórkostleg skipulagning' láns-
stofnana fyrir landbúnaðinn.