Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 59
Rjettur] BARÁTTAN UM HEIMSYFIRRÁÐIN
267
herflotaeiningu, 16 eru í smíðum og 83 er í ráði að
smíða.
Hjer er um að ræða stórkostlega aukningu herbún-
aðar á sjó, þrátt fyrir allar »afvopnunar«-ráðstafanir,
sem í raun og veru eru ekki til neins annars en að
hilma yfir vígbúnaðinn og blekkja lýðinn. Árið 1927—
1928 var í Bretlandi byrjað á smíði tveggja fylkingar-
skipa (Linienschiffe), tveggja smærri herskipa (Kreu-
zer), tveggja tundurspilla og tveggja kafbáta. i Banda-
ríkjunum voru 3 fylkingarskip gerð upp að nýju og
lokið við að smíða tvö hjálparskip handa flugvjelum,
er hvort ber 100 flugvjelar. í Japan var hafin smíði á
fjórum smærri herskipum, einu hjálparskipi handa
flugvjelum og nokkrum tundurspillum og kafbátum.
Frakkland byrjaði á smíði þriggja smærri herskipa,
eins hjálparskips handa flugvjelum og margra kaf-
báta. Og ítalía hóf smíði á tveimur smærri herskipum,
16 tundurspillum og nokkrum kafbátum. Loks má ekki
gleyma herflotaáætlun Bandaríkjanna fyrir næstu 5
ár, þar sem smíða skal 23 herskip, og er hvert 10,000
tonn, 5 hjálparskip flugvjela, 33,000 tonn hvert, 9
tundurspilla og 32 kafbáta. Til þess að koma þessu
fram þarf upp undir 1 miljarð dollara.
Þá skulu að lokum verða sýndar hjer nokkrar tölur
um hernaðarflugvjelar í 6 ríkjum; aukningu þeirra
frá 1923—1927: Árið 1923. Árið 1927.
Bretland 408 834
Bandaríkin 520 ca. 700
Frakkland 1250 ca. 1650
ftalía 250 600
Japan 150 434
Þýskal. (almenningsflv.) 145 512
4730
Alls: 2723