Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 52
260 FYRSTA ÁR MITT SEM VERKAMAÐUR í R B [Rjettur
f sveitabúskapnum er samvinnan ekki búin að ná
eins föstum tökum, og veldur það ýmsum óþægindum
við og við. Einkum kemur það fyrir á veturna, að
hörgull er á smjeri í Moskvu. Jeg hefi sjeð menn
standa í »halarófu« utan við sölustaði, til að ná sjer
í smjer. Jeg hefi sjálfur kosið heldur að komast af með
smjörlíki heldur en að standa í »halarófunni« og bíða
eftir að fá keypt smjer, en samt er það ekki meira en
einn mánuður alls, af dvöl minni hjer, sem jeg hefi
verið smjerlaus — »smjörlíkistímabilin« öll saman-
lögð — og þó hefi jeg aðeins haft tímann frá 5—6 tii
innkaupanna.
Ritari Kaupfjelags-sambandsins, Bolgan, hefir ritað
af vandvirkni og þekkingu um samvinnuf jelagsskap-
inn í R B. Jeg, sem hefi haft viðskifti við fjelögin dag
hvern í heilt ár, votta, að starf þeirra fer vel úr hendi.
Heimilislíf.
Margir óvinir R B hafa borið fram í riti og ræðu,
að heimilislífið sje að fara þar algerlega út um þúf-
ur. Jeg hefi sjeð með eigin augum, að það eru lyga-
sögur, sömu tegundar og aðrar lygasögur, sem búnar
eru til og breiddar út, til þess að sverta R B í augum
verkamanna annara landa. Jeg lifi hjerna í svo nánu
samlífi við fjölda af fjölskyldum verkamanna, sem
hugsast getur og sje dag hvern, að maður og kona
hjálpa hvort öðru dyggilega til að annast um börnin.
Þegar hann kemur heim úr vinnunni, gætir hann
barnanna meðan hún er að búa út matinn, og hvenær
sem færi gefst, ganga þau saman um götur, trjágarð-
inn, trjágöngin. Hjer er sjaldgæft að nota barnavagn,
en á vetrum eru oft notaðir barnasleðar. Þetta mun af
því stafa, að gangstjettirnar í Moskvu eru illa færar
barnavögnum. Víða eru mörg þrep upp að fara af ak
brautinni upp á gangstjettina. Á vetrum gerir snjór-