Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 92
300 STEFNUSKRÁ ALÞJÓÐAS. KOMMÚNISTA [Rjettur
h) Efla skal og styrkja með fé samvinnufjelög í
landbúnaði og allar myndir sameiginlegrar framleiðslu
í sveitaþorpum (framleiðslufjelög, sameignarfjelög o.
s. frv.). Reka skal skipulagsbundna útbreiðslustarf-
semi, fyrir sameiningu bænda á samvinnugrundvelli
(stofnun fjelaga, til sölu, kaupa og lánastarfsemi með
samvinnusniði og sje fjelög þessi bygð á fullu sjálf-
stæði bændanna). Berjast skal fyrir því, að gengið
verði yfir til stórframleiðslu í landbúnaðinum. Stór-
framleiðslan hefir langmest atvinnuleg not í för rrieo
sér, vegna verklegra og atvinnulegra yfirburða sinna
og flýtir fyrir því að allur þorri vinnandi bænda gangi
yfir til sósíalismans. .
C. Verslun og lánsstofnanir.
a) Þjóðnýta skal alla einkabanka (fá allan gullforða,
verðbrjef og innstæðufje o. s. frv. í hendur öreigarík-
inu) ; ríkisbanka, bæjarbanka og aðra slíka, skal af-
henda öreigaríkinu.
b) Setja skal öll bankamál undir eina stjórn og setja
alla þjóðnýtta stórbanka undir ríkisbankann.
c) Þjóðnýta skal alla stærri verslun og hin stærri
verslunarfyrirtæki einstakra manna (vörugeyma,
korngeyma, vöruforða o. s. frv.) og fá í hendur stofn-
unum ráðstjórnarríkisins.
d) Efla skal, sem mest, kaupfjelagsskapinn, sem
merkilegasta þátt útbýtingarstarfseminnar, sameina
starfsemi kaupfjelaganna og tryggja sjálfstæða þátt-
töku lýðsins í stofnun þeirra.
e) Einokun utanríkisverslunarinnar.
f) Afnám ríkisskulda, er greiða skal til erlendra eða
innlendra auðmanna.
D. Vinnulöggjöf etc.
a) Stytta skal vinnutímann niður í 7 stundir, en í