Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 73
Rjettur] BARÁTTAN UM HEIMSYFIRRÁÐIN
281
ar úr höndum þess og- tók að reisa nýtt þjóðfjelag' á
rústum hins borgaralega þjóðskipulags. Það var
þyngra áfall en svo, að auðvaldið gleymdi því í bráð,
og því hyggur það á hefndir. Það hervæðist í ákafa
gegn ríki verkalýðsins, og nú upp á síðkastið hafa ó-
friðartilhneigingar þess orðið einna berastar. Stórveldi
Evrópu, Bretland og Frakkland, nota hin smærri ríki
álfunnar til þess að undirbúa ófriðinn við Rússa, og
sjest það einna best á athöfnum þeirra í nágrannalönd-
um Rússlands. f nágrannalöndum Rússa ríkir allstaðav
fasismus eða fasistísk ógnarstjórn, og allir vita, að
landvinningastefna auðvaldsins kemur hvergi jafn
greinilega fram, eins og í fasismanum. Nágrannaríki
Rússa sýna þeim og slíka úlfúð og- beran f jandskap, að
heimsfriðnum hefir verið hin mesta hætta búin. En
þau skáka í því skjólinu, að stórveldin standa að baki
þeim og eru reiðubúin að veita þeirn allan þann styrk,
er þau mega.
Einn hættulegasti nábúi Rússlands er Pólland. Þar
ríkir fasistahöfðinginn Pilsudski, eftirlætisgoð og
uppáhaldsskósveinn hins franska lýðveldis. Með tak-
markalausri ósvífni, sem stingur í stúf við hræsni hús-
bænda hans, undirbýr hann sti'íð gegn Rússum. Stríðs-
undirbúningur Pilsudskis varð ber öllum heimi síðast-
liðið sumar. Hann gerði hernaðarbandalag við Rúm-
eníu, og er ætlunin að sameina öll nágrannaríki Rúss-
lands gegn því. I blaðaviðtali í Búkarest, þegar hann
var að samningsgerðinni, sagði hann: »Sjerhvert ríki
sem vill losna við útbreiðslu kommúnismans, og þráir
frið í raun og sannleika, verður að styðja og styrkja
Pólland og Rúmeníu, því að það hefir fallið í þeirra
hlut að vernda Evrópu fyrir hinni kommúnistisku
plágu.«
Hjer er ekki talað undir rós, eins og allir sjá. En sá
sem stendur að baki þessu hernaðarbandalagi og ófrið-
arbrölti er Frakkland.