Réttur - 01.01.1974, Side 17
hinnar vinsælu nýsköpunarstjórnar, ef samn-
ingurinn yrði samþykktur. — Þjóðin hans
Kristins átti oft eftir að bregðast því barni
sínu, sem ann henni heitast, — en aldrei
skyldi hún fá ávíturnar fyrir að láta hlunn-
færa sig, — þá yrðu heldur „realpólitíkus-
arnir" að fá fyrir ferðina!
Rómantíska tignunin á fagurri hugsjón
kemur líka fram í afstöðunni til tillögu Fjöln-
ismanna um Alþingi á Þingvöllum og andúð
á ákvörðun Jóns Sigurðssonar um Alþingi í
Reykjavík og Kristinn undirstrikar hvílíkt
„hreiður auðvaldsins" Reykjavík sé orðin. En
það vill gleymast að Reykjavík er líka vígi
sterkustu verklýðshreyfingar landsins og
þrýstingur hins vinnandi fjölda á Alþingi
getur því orðið ólikt meiri þar, — eins og
árin 1946 og 1949 m.a. sýndu, — en ef það
væri á Þingvöllum. Rómantísk afstaða getur
oft orðið afturhaldi til framdráttar en raun-
hyggja hinsvegar róttæk, þó hinu verði ekki
neitað að jafn fagur er draumurinn um
„haukþing á bergi" og sú vissa Kristins rétt
að sú kemur tíð að Alþingi Islendinga verður
aftur háð á hinum fornhelga stað — í stétt-
lausu þjóðfélagi framtíðarinnar.
En sagnariturum framtíðarinnar og áhuga-
mönnum nútímans skal tekinn vari á að ætla
Kristni þessar tvær hugmyndir, sem hér er
á minnst sem endanlegar niðurstöður alvar-
legrar umhugsunar. Til þess hafði hann eng-
an tíma, er hann reit sínar hugdettur af þeim
fádæma krafti og hugarflugi, er bókin ber
vitni um, fársjúkur og oft ákaflega áhyggju-
fullur.
Reikningsskil hugsjónamannsins — stund-
um við raunsæið, stundum við afsláttarstefn-
una — eru auk sögulegu fræðslunnar rauði
þráðurinn í þessari bók Kristins. Adrepur
hans eiga vissulega erindi til margra í verka-
lýðshreyfingu og „vinstri" flokkum á þess-
um tímum. Vissulega hefur nútíminn þörf
ALLSHERJARVERKFALL GEGN
HERSTÖÐVASAMNINGNUM
til aS knvja fram þjóðaratkvæSi
tMÓÐVILllNN
\kU
ríil í
HaSkLij K3»n
SAMNINGURINN TAKNAR UPP
GJÖF FULLVEL9ISISLANDS
thisundir Reykvdá® nróhiwltu t bAmadvólaportinu
Itmtrðvaiamningi Olafs ’TTtprs
"il'tii AljiyíiKnmttmiti tslnmb Wti ta. á illaa vríUIyJ ng la«Ti]«cc!i
. r.i róitntimvi til n3 m attt #1» i {icirra v*Wi strmtur til sj fcrfa
rliia, sra mí cru kyiHir si sj.úfstvJi tstsmts
-s«*y •».,‘* .*<“•*.» »«*•**• *»;• l u, ,“7* •'.*
• ■'.'•**• ttzj •■* »S‘« iAvia *•»«*-;**>*: '
. ... * SNíS. *.-*f*i *V>»!.-S«y*r rtfttoW W* U-i. ■ *,''7** ' ‘
t .VNrv ♦t' tVSÍAw* i-r-i
.:-•UVa * i—UVH *.».-• •■-< <.••..>•« tofS X HNt. .*.•!»« < 'u.
. -- S*jj*»t. J,*. .',* ttntc,X ttfiftty*. «*«*•'•iS.V- s. „
í '0 <*.** /4W V»* .-t*~* +& ’Uf*. \ .*••* hft AV.': *~.1* .».•> Lm Qn*»
• w»Uí* <ír.t.N •*.-;TtrrVíit.-*At*iS<S *Sv* ftoi* ^.V<vuj.rtwlKnr»»'ttt*VK
..... . . . . 1
W»r
t
» *» >ir*J»,*t n5 pt+t> 'tSrwS.i ** *-♦ «>**» »•*! 1 - *--•
- > u*tM >*w «4 i-.'*S;UY*m' w* t*kí *.*-vSu * « ii.Vv>S'«t!i.»»«
...... ■ ■ -JA2SK* ..........■■■-
Forsíða Þjóðviljans mánudaginn 23. sept. 1946.
fyrir það að hugsjónirnar séu aftur hafnar
til vegs og valda, svo mjög sem margháttuð
afsláttarstefna hefur dregið þær niður í svað-
ið. Og hér sem oftar er treyst á æskuna,
sem einmitt nú er óvenjulega uppreisnar-
gjörn —■ og á hana setur og Kristinn sína
miklu trú.
En byltingamenn eru jafnan bráðlyndir og
vænta sigursins oft fyrr en auðið er. Þar eiga
þeir Marx og Engels og Lenín sammerkt með
hinum smærri spámönnum. Þroskun hverrar
þjóðar og þá fyrst og fremst vinnandi stétt-
17