Réttur - 01.01.1974, Qupperneq 22
svo giftusamlega til tekist að fjöldahreyfingu
þeirri, er Sósíalistaflokkurinn skóp, hafi verið
bjargað út úr erfiðleikum og ólgu áratugsins,
þá velti nú á öllu að skapa og treysta innviðu
þess flokks, sem verið sé að móta. Og x því
verki að byggja upp innviðuna að nýju —
án þess að glata fjöldafylgi og áhrifum —
verða þessar kiljur Brynjólfs giftudrjúgur
leiðarvísir öllum íslenskum sósíalistum, innan
Alþýðubandalagsins og utan, og alþýðu allri.
★
íslenskri alþýðu hafa bætst hér góðar bæk-
ur, sem geta orðið henni beitt vopn í frelsis-
baráttunni, — hjálpað til að gera hana sósí-
alistíska í hugsun. Nú ríður á að hún kunni
að meta þær og nota.
SKÝRINGAR:
Tilvitnanir þessar eru úr riti Marx frá 1844:
,,Zur Kritik der Hegelschen Rechtsphilosophie.
Einleitung". (Marx—Engels: Werke I. bls. 385 í út-
gáfu Dietz Verlag 1956). Fyrri tilvitnunin er úr
setningu er hljóðar svo á þýzku: „Die Waffe der
Kritik kann allerdings die Kritik der Waffen nicht
ersetzen, die materielle Gewalt muss gesturzt werd-
en durch materielle Gewalt, allein auch die Theorie
wird zur materiellen Gewalt, sobald sie die Massen
ergreift." — Síðari tilvitnunin er á bls. 386. Hún og
setningin á undan henni hljóða svo: „Die Revoluti-
onen hedurfen námlich eines passiven Elements,
einer materiellen Grundlage. Die Theorie wird in
einem Volke immer nur so weit verwirklicht, als
sie die Verwirklichung seiner Bedúfnisse ist".
2> Bók Leníns um einangrunarstefnuna, er út
kom 1920 heitir á íslensku: , .Vinstri róttækni"
barnasjúkdómar kommúnismans" (Heimskringla
1970). (Á þýskunni: Der „linke Radikalismus", die
Kinderkrankheit im Kommunismus).
22