Réttur - 01.01.1974, Síða 32
EINAR OLGEIRSSON
RISIÐ ÚR
Hugleiðingar um ,
I síðastliðnu ári hafa orðið alger umskipti á af-
stöðu ríkja auðvaldsins til Þýzka alþýðulýðveldis-
ins (DDR). Nú viðurkennir loks allur þorri auðvalds-
rikjanna Þýzka alþýðulýðveldið eftir að hafa tæpan
aldarfjórðung barið höfðinu við steininn og neitað
staðreyndum. Er DDR nú orðið meðlimur Samein-
uðu þjóðanna.
Island hefur nú skipzt á sendifulltrúum við Þýzka
alþýðulýðveldið eftir að hafa átt við það ýmiskonar
menningarleg og viðskiptaleg sambönd í tvo ára-
tugi.
Sérstaklega hafa Eystrasaltsvikurnar stuðlað að
nánum kynnum og vináttu milli verkalýðshreyfinga
landanna og annarra samtaka í báðum löndunum.
Og á því ári, sem nú er að byrja, verður DDR
25 ára gamalt.
Það er því ástæða til að íhuga ýmislegt og minn-
ast margs í samskiptum og sögu sósíalísku verk-
lýðshreyfinganna í þessum tveim löndum.
RÚSTUM
hitt Þýskalandið”
I.
Þegar myrkur nazismans grúfði yfir Þýzkalandi
og lagðist síðan sem mara yfir meirihluta Evrópu,
— þegar verklýðssamtök og -flokkar voru hnepptir
í fjötra og tugir þúsunda sósíalista — kommún-
ista sem sósíaldemókrata — kvaldir í fangelsum,
— þegar beztu rithöfundar og vísindamenn Þýzka-
lands urðu að flýja land, — þegar blóðidrifinn naz-
isminn saurgaði svo alla germanska arfleifð með
ofstæki sínu að enn eymir eftir af,* — þegar blóð-
ríki þýzka auðvaldsins leiddi hrylling heimsstyrjald-
arinnar yfir Evrópu, — þá lá við að óafmáanlegur
smánarblettur kæmi á allt, sem þýzkt var.
* Vesturþýzki Nobelsverðlaunahafinn Helnrich
Böll sagði í samtali við Svövu Jakobsdóttur, sem
hún sagði frá í Þjóðviljanum að hann hefði ungur
haft ást á Islendingasögum, en gæti nú vart hugsað
sér að lesa þær eftir misnotkun Hitlers á þelm.
32