Réttur - 01.01.1974, Side 47
Frá orlofsheimilum verkamanna.
En í augum þessara manna, er þar fara með
völd, er ef til vill við enn meiri vanda að fást en
við sjáum í fljótu þragði. Á þeirra herðum hvílir
vandi þeirrar stjórnlistar að finna hið rétta meðal-
hóf milli valds og frelsis.
Handan múrsins bíður auðvaldspressa Springers
sem óargadýr, þetta skrímsli andlegrar einokunar,
sem gerir málfrelsið í Vestur-Þýzkalandi að mál-
frelsi peninganna og beitir öllu sínu voðavaldi til
að spilla þýzkri þjóð, villa um fyrir almenningi,
blekkja og Ijúga — allt til þess að koma ofstækinu
og afturhaldinu til valda á ný í Vestur-Þýzkalandi.
Og allir vita að hurð skellur nærri hælum, ofsókn-
unum gegn kommúnistum er áfram haldið, gamli
KPD enn bannaður og Hitlers-dýrkun færist í vöxt
sem farsótt. Auðhringar og auðvaldsblöð eru sterk-
ari og áhrifameiri en nokkru sinni, — þótt ham-
ingjan hafi hliðrað svo til að frjálslynd stjórn er
þar nú, — en litlu munaði að ver færi.
En hvað sem öllu öðru líður, þá finna laiðtogar
alþýðunnar í DDR, flokksforustan í SED, fyrst og
fremst eina skyldu hvíla á sínum herðum — og
það er að aldrei aftur skuli auðvald með sitt aftur-
hald og fasisma komast til valda i þeim hluta hins
forna Þýzkalands, sem nú er DDR. Lái þeim sá,
er verið hefur í þeirra sporum og félaga þeirra.
Þeir vita hvað fasisminn er — og frá hverju
þeim þer að forða þeirri kynslóð, sem nú vex upp I
Þýzka alþýðulýðveldinu. Litum á nokkur æviatriði
þriggja af leiðtogum SED.:
Erich Honecker, nú aðalritari flokksins, erfæddur
1912 I Saarhéraði, sem þá var sjálfstætt. Hann er
sonur kommúnista, gengur 14 ára í Æskulýðssam-
tök kommúnista, er 19 ára gamall orðinn ritari
þeirra. Þegar Saar er innlimað í ,,þriðja ríkið" 1936,
er hann, 23 ára að aldri, tekinn fastur af því hann
er í miðstjórn Æskulýðssambandsins og síðar
dæmdur í 10 ára fangelsi. Áratuginn frá 23 til 32
47