Réttur - 01.01.1974, Page 48
Rústirnar i Frankfurter Allé 1945. Sú gata var síðan endurreist sem Stalinallé og nú Karl Marx-allé.
ára situr hann i dýflissum fasismans. Eftir frels-
unina úr fangelsi fasismans, hefur hann helgað allt
sitt líf flokknum og starfinu fyrir hann og tók 1971
við af Walter Ulbricht sem aðalleiðtogi flokksins.
Hermann Axen, ritari miðstjórnar flokksins og
starfandi að alþjóðamálum, er fæddur 1916;gengur
16 ára í Æskulýðssamtök kommúnista, starfar af
kappi, líka á laun eftir valdatöku nazista 1933.
Fangelsaður 1934 og dæmdur í þriggja ára tugt-
hús. Vísað út úr Þýzkalandi 1937, starfar í Frakk-
landi, tekinn til fanga þar í stríðinu og er síðan
í hinum ýmsu fangabúðum nazista, starfar þar af
kappi, hafði gengið í KPD 1942. Hann var í leyni-
stjórn fangahópsins i Jawisziwice, sem var „útibú"
frá hinum alræmdu dauðabúðum Auschwitz, og var
seinast í fangabúðunum í Buchenwald, þar sem
hann tók þátt í uppreisninni, er fangarnir þar voru
frelsaðir. Síðan hefur hann helgað sósíalismanum
og flokknum allt sitt starf.
Horst Sindermann, varaforsætisráðherra DDR, er
fæddur 1915 í Dresden. Gekk 1929 i Æskulýðs-
samtök kommúnista. Starfaði af kappi í þeim og
var fangelsaður eftir að hafa háð leynibaráttuna
48