Réttur - 01.01.1974, Page 58
ÞRÖSTUR ÓLAFSSON:
OLÍUKREPPAN
I.
Mikið hefur verið rætt að undanförnu um striðið
í Austurlöndum nær og olíukreppuna. Hafa menn
komist að þeirri niðurstöðu, að ekki sé allt sem
sýnist i þeim málum og róa þurfi á dýpri mið til að
sjá þann sannleika, sem hvílir á bak við staðreyndir
yfirborðsins.
Til þess er nauðsynlegt að líta í mun víðara
samhengi en hingað til hefur verið gert. Einnig er
nauðsynlegt að taka mið af þeim kreppueinkenn-
um, sem nú eru greinileg i Vestur-Evrópu, þar sem
hagvöxtur virðist hafa staðnað og atvinnuleysi og
sölutregða verða að stöðugt meira vandamáli. En
þetta er kreppa óháð olíukreppunni, en áhrif henn-
ar og útbreiðsla verða þó víðtækari vegna sam-
dráttar í orkuframleiðslu og verðhækkana á olíu.
Ég styðst I þessari grein við fjölmargar greinar
ritaðar I upphafi þessa árs í erlendum blöðum.
Þar sem leiðinlegt er að geta heimilda í hvert og
eitt sinn mun ég sleppa því en gefa I lokin upp
nöfn þeirra helstu rita sem ég hef notað.
Auðmagn og friðsamleg sambúð !)
Henry Kissinger, sá kvenholli ráðherra, hefur
fengið mikið lof fyrir friðarreisur sínar og vopna-