Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 7
fátæktartíma, þegar lífsbaráttan krafðist allra tækja, sem til voru. Engu hefur verið fleygt, sem nothæft var, mundi maður ætla, og allra sízt heilum skipum og ágætum vopnum. En þessi fornleifafundur á sér svo margar hliðstæð- ur frá fornöld Norðurlanda, að hann veldur engum heilabrotum að þessu leyti. Alsbáturinn með öllum útbúnaði sínum er fórn til guðanna eða guðsins, sem tignaður hefur verið á kelt- nesku járnöldinn. Við vitum, að á bronsöldinni var sólar- og himinguð æðstur goða eða jafnvel eini guðinn. Hafa stundum fundizt bronsmynd- ir í jörðu, er sýna hina logagylltu sól aka í vagni, er sólfákurinn dregur. Slíkir fornmunir tala-skýrt á þagnarmáli sínu. Sólguðinn er guð bændanna, sem rækta jörðina. Hann ræður fyr- ir sól, regni og vindum og þar með gróðri jarð- ar. Ekkert er líklegra, en að þessi guð hafi einnig verið tignaður á keltnesku járnöldinni. Einnig þá voru Norðurlandabúar bændaþjóðir, sem allt sitt áttu undir skini sólarinnar. Hjort- springmýrin hefur verið heilagt vé sólguðsins. Þar hafa menn blótað hann til heilla sér, mýkt hug hans með fórnargjöfum og fært honum þakkarfórnir, þegar allt lék í lyndi. Alsbúar hafa fært honum þessa miklu fórn fyrir unn- inn sigur í herför eða happasæla vörn gegn vík- ingum við strönd eyjarinnar. Ef til vill er bát- urinn sjálfur einmitt hluti herfangsins. Hinn rómverski sagnaritari, Sesar, lýsir því hvernig Gallar fórnuðu herguðnum herfangi sínu: „Ef þeir hljóta sigur, fórna þeir honum mönnum og skepnum, er þeir hafa náð, en allan feng ann- an láta þeir í einn stað, enda getur þar að líta, með ýmsum þjóðflokkum, heila hlaða af slík- um hlutum í helgireitum". Hjortspringmýrin hefur einmitt verið einn slíkur helgireitur. Þar var sólguðnum færð hin dýra fórn, og enginn dirfðist að hafa á móti því eða nema fórnina á brott síðar, því að það voru helgispjöll og grið- rof við guð og menn. En nú skulum við víkja aftur að Alsbátnum sjálfum og athuga það stig í skipasmíðatækni, sem hann sýnir. Hann er lítill og frumstæður í samanburði við dreka víkingaaldarinnar, en vafalaust ber hann þó langt af fleytum þeim, sem forfeður vorir hafa notazt við í upphafi byggðar á Norðurlöndum. Langur þróunarferill liggur að baki Alsbátnum, en hann verður trauð- lega rakinn, af því að heimildir skortir. En getur Alsbáturinn sjálfur veitt nokkra vitneskju um þennan feril? Sézt á honum nokkurt ættar- mót, sem hann hefur af forfeðrum sínum? Saumaskapurinn gefur bendingu í rétta átt. Það er eitthvað óeðlilegt við að sauma trjávið, og upprunalegt getur það ekki verið. Þetta hlýt- ur því að vera stælt eftir öðrum iðngreinum, t. d. klæða- og skinnaiðninni, Skinnbátur, húð- keipar, eru mjög algengir hjá frumstæðum þjóðum, er við sjó búa, jafnvel enn í dag, og þeir geta verið ágæt för, sem taka trébátum langt fram að lipurð í úfnum sjó. Kajakkarnir og konubátarnir grænlenzku eru ljós dæmi þess, hversu fulkomnir skinnbátar geta verið. Geta má þess og, að bátarnir, sem fyrstu landnáms- menn Islands, hinir írsku Papar, sigldu á hing- að til lands, voru litlir skinnbátar, af sömu gerð og þeir smábátar, sem enn eru notaðir við Einn af skjöldunum, sem fundust með bátnum. strendur írlands. Það er engin ástæða til að efa, að Norðurlandabúar hafi haft slíka báta til fiskiveiða og siglinga með ströndum fram, auk þess, sem eintránungar hafa tíðkazt frá fornu fari. En skinnbátar og eintrjánungar geta aldrei orðið annað en smáfleytur.Þegar stundir liðu fram og farið var að reyna að smíða stór skip, varð til hið samsetta tréskip. Alsbáturinn er árangur slíkra tilrauna, og honum bregður bæði í ættina til eintrjáninganna og skinnbát- anna, sem hann er af kominn. Hann er trébát- ur, samansettur úr eins fáum stykkjum og framast er unnt, með stöfnum, sem holaðir eru út í einu lagi. Að þessu leyti kippir honum í kynið til eintránunganna. Hins vegar er hann saumaður saman, en ekki negldur, og sú að- ferð er komin frá skinnbátagerðinni. Þess vegna heita naglarnir enn þann dag í dag „saumur“. Við sjáum þá, að smiðir þeir, sem smíðuðu Alsbátinn hafa fært sér í nyt alla þá reynslu og þekkingu í bátasmíðum, sem Norðurlandabúar höfðu háð sér á mörgum áraþúsundum. Og VfKINGUR 277

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.