Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Qupperneq 17
HENRIK BJELKE
Naumast veit sá maður mikið í sögu íslands, sem
ekki hefur heyrt Henrik Bjelke nefndan. Hann var hér
hirðstjóri frá 1648 til 1683, og kemur þar af leiðandi
mjög við sögu þess tímabils. Mun ýmsum þykja gaman
að sjá mynd þessa stoltarmanns. Er til málverk af
Bjelke, gert af samtíðarmanni hans, og birtist hér ljós-
mynd af því. Er augljóst, að Bjelke hefur verið glæsi-
menni mikið, fríður í andliti og föngulegur á velli.
Henrik Bjelke var fæddur 13. janúar 1615. Hann
var af tignum ættum, norsk-dönskum, og var faðir hans
kanslari Noregs. Bjelke hlaut ágæta menntun og var
við nám í ýmsum löndum. Gekk hann síðan í herþjón-
ustu og ákvað að leita frama á þeim vettvangi. Var
hann í herförum með Friðriki prinsi af Óraníu og fleiri
erlendum þjóðhöfðingjum, og hlaut brátt mikið orð fyr-
ir hreysti. Árið 1648 var svo komið, að Bjelke hafði
hlotið mikið orð fyrir unnin störf í þjónustu iands síns.
Var honum þá umbunað með því, að konungur útnefndi
hann lénsherra eða landsstjóra (guvernör) á íslandi.
Um svipað leyti var Bjelke og sleginn til riddara með
mikilli viðhöfn. Bjelke var í miklu vinfengi við Friðrik
konung þriðja. Jafnframt landstjórn á íslandi gerði
konungur Bjelke að flotaforingja. Gat Bjelke sér mik-
inn orðstír í bardögum við sænska flotann á styrjaldar-
árunum 1657—1660. Þegar Friðrik þriðji gerðist ein-
valdur studdi Bjelke hann mjög eindregið og hlaut
margvíslegar sæmdir að launum. Erfðahyllingunni í
Kópavogi stýrði Bjelke með harðri hendi, svo sem al-
kunnugt er, en hún fór fram 28. júlí 1662. Hótaði Bjelke
að beita hervaldi, ef ekki yrði látið að orðum hans.
Þrátt fyrir þessa ömurlegu minningu, sem fellt hefur
ærinn skugga á nafn Bjelkes í augum íslendinga, verð-
ur því ekki á móti borið, að Bjelke hefur verið einhver
mikilhæfasti hirðstjóri, sem Danir sendu hingað til
lands. Jón Halldórsson í Hítardal segir svo frá, að hann
hafi haldið landinu í góðri stjórn og stilli, Ijúfur og
lítillátur við alþýðu manna, en strangur við stórbokka,
ef til þurfti að taka, enda gerðust engir til að ýfast við
hann. Hann var andvígur fordild og flysjungshætti,
vildi, að menn héldu sig eftir hætti landsins í fæði og
klæðum, reyndi að bæja frá álögum á landsmenn, með
því að sýna utanlands, hvert viðurværi menn hér hefðu
við að búa. Hann fylgdi ella vel fram boðum konungs í
öllu því, er hann taldi landinu nytsamlegt. Svo segir Jón
Halldórsson og, að landsmenn hafi tregað hann sem
föður, er þeir fréttu lát hans. — Og þótt aðrir sagnarit
arar beri honum nokkru miður söguna, verður þó sýnt,
að Bjelke hefur enginn hversdagsmaður verið.
Henrik Bjelke andaðist 16. marz 1683.
y 1K l'N G U R
287