Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Síða 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Síða 34
Sigurður þorsteinsson: G d uömunaur is eitsson if: Guðmundur ísleifsson á Háeyri á Eyrarbakka, var fæddur 17 janúar .1850, og andaðist hér í Reykjavík 3. nóvember 1938. Hann var Skaft- fellingur að ætt en fluttist til Eyrarbakka ná- lægt tvítugsaldri Fyi’st sá ég hann er ég var á barnsaldri og var hann þá ráðsmaður á búi Guðmundar Thor- grímsen verzlunarstjóra á Eyrarbakka og heyrði ég um hann talað sem afburða duglegan og kappsaman til allra verka, en mér er hann minn- isstæður frá þeim tíma, sem einn af allra glæsi- legustu mönnum, er ég hafði séð, og fékk ég snemma löngun til að kynnast honum, einkum vegna þess, að dómar manna um hann voru ekki allir á einn veg. Guðmundur giftist Sigríði Þor- leifsdóttur hins ríka á Háeyri, hinni ágætustu konu, og var heimili þeirra alla tíð orðlagt fyr- ir rausn og skörungsskap, og umfangsmikla verzlun hafði Guðmundur þar um skeið. Hér verður ekki rakin sú saga frekar, en einn þáttur í lífi hans var sá, er ég tel einna sterk- astan, og sá þáttur var sjómennska hans og for- mennska á Eyrarbakka og verður hér farið um það nokkrum orðum. f sögu Eyrarbaicka, sem nýkomin er á bókamarkaðinn, er Guðmundar að sjálfsögðu getið og drepið á athafnir hans í búskap og verzlun og er einnig tilfærður þar úr bréfabók (Ámessýslu) 20. júní 1887, vitn- isburður um fonnennsku hans og sjósókn, eftir Stefán Bjamason sýslumann, og er hann á þessa leið: „Guðmundur ísleifsson hefur haft mjög mikil áhrif á almenna sjósókn hér í veiðistöðinni, því sjálfur er hann mótmælalaust hyggnasti og bezti formaðurínn, og fyrir hans miklu sjósókn, hef- ur sjósókn sjálfsagt aukizt um helming eða meir, bæði að fæmi og kunnáttu sjómanna sjálfra, sem og skipafjölda, sem honum er líka að nokkru leyti að þakka“. Þennan vitnisburð hins merka manns get ég fyllilega tekið undir, eftir því, sem ég kynntist þessum, að mínu áliti sterkasta þætti í lífi Guðmundar. Ég heyrði er ég var litt af barnsaldri kom- inn, mikið um dugnað hans talað, og von bráð- ar fór ég að heyra um hann ræ'tt sem formann, og voru sjósókn hans og aflabrögð mjög orð- lögð. Heyi’ði ég að hann hefði nokkrum sinnum róið einn skipa, þegar öðrum virtust sundin VÍKINGUR 304

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.