Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 37
Fiskimenn frá Gloucester greiSa net sín.
ýmissa tegunda. Má þar einkurn nefna þorsk,
makríl, ýsu, lúðu og karfa. Veiðiaðferðir eru
hinar margvíslegustu. Einkum er netjaveiði al-
geng, svo og línuveiði. Um langt skeið hafa
stærri skipin notað litla, flatbotnaða báta eða
„doríur“ við veiðarnar. Nú er véltæknin óðum
að ryðja sér til rúms við fiskveiðar Gloucester-
manna, og hefur togurum fjölgað allmikið síð-
ari árin.
Fiskimennirnir í Gloucester eru kynjaðir frá
ýmsum löndum. Einna mest ber á afkomendum
ítala, Porúgalsmanna og Norðurlandabúa. Er
þar margt harðgerðra manna og röskra, sem
láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna.
Ekki hafa Gloucestei’búar getað stundað hinn
áhættusama atvinnuveg sinn án þess að færa
dýrar mannfórnir. Skýrslur sýna að frá árinu
1830 og til þessa dags hafa yfir 10 þúsund
fiskimenn frá Gloucester farizt við störf sín.
Hefir látnum sjómönnum verið reist veglegt
minnismierki, sem stendur á áberandi stað ná-
lægt höfninni.
Við netgdráttinn.
VÍKINGUR.
307