Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Síða 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Síða 50
Guð m. G. Hagalín: igurjon C se rliKjnr Þegar Sigurjón Á. Ólafsson, formaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur, varð sextugur, hugð- ist ég senda lionum símleiðis tvær, þrjár vísur, og svo settist ég við að ríma. En bæði var það, að mjög vildi teygjast úr bragnum og ærið sjald- gttíft, að ég yrki vísur, enda tókst ekki betur til en svo, að ég fékk ekki lokið kveðskapnum í tæka tíð. Fleygði ég þá blöðunum frá mér í fússi. En fyrir skemmstu rakst ég á þau einn sunnudagsmorgun, settist við á nýjan leik og sat Iengi dags, og hér er bann svo kominn, brag- urinn. Höfundur. Bær á hól við hýra vík horfir út á sœinn og mót hvanna brattri brík brosir sumardaginn. En um vetur byrgir brá björtu fannatrafi, af því kaldan andar þá oft frá dal sem hafi. Me'ófœtt þrek og manndóm þinn mátti ei þarna saka: Snemma lœróir köldukinn klífa og barning taka. Vestur í Fjörðum fjöllin há ferleg sýnist mörgum, brattar skriðiir, gnípa, gjá, gljúfur í skuggabjörgum. Þó að brimiö byldi á klöpp, bryti á gljúpum sandi, fannst þér von um feng og höpp fleiri á sjó en landi. Þröngir dalir, fossaföll, fátt um sléttar grurtdir, bleikir teigar, blómguS höll bröttum flugum undir. Hló þér líka hugurinn hafsins móti boSum, þegar sædrif sveiS á kinn, söng í þöndum voSum. Klappir, nesin klungurber, hvítar, sendnar víkur, svartir drangar, skarfasker, skútar, hamrabríkur. SíSar lœrSir lífsins kver, lögmál þurfti ei efa: Fúin skúta, skerfur þér skammtaSur naumt úr hnefa. Fyrir landi liggur sær lygn eSa boSum skrýfSur, strýkur milt, en stundum slœr straumi og vindum ýfSur. Þeirra er skammta skerf og gjald, skrifa feng og selja’ ’ann — þeirra er dýröin, þeirra er vald, þitt er strit og eljan. 320 VÍKINGVR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.