Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 56

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 56
dorus Thorlacius, núverandi adjunct við Bessa- staða Latínuskóla Jón Jónsson, og ég) frá Görð- um á íslenzku skipi, þegar eftir gjörðu aftali sást flaggað hjá Prest, náðum við honum og svo hæglega á útsiglingu hans. Þennan dag var góður landsynningskaldi, og við komumst um kvöldið til Fuglaskerja, þá logn gjörðist. Finnur Magnússon um þrítugt. 10. Kl. 11 um morguninn var Snæfellsjökull að sjá í austur-landnorður. Þá var vindurinn á landsunnan með stífum kalda, en hvessti um nóttina. 11. Var ofsastormur, drifum við vestur í haf, sami vindur. 12. Sama veður, þó með nokkuð hægra vindi. 12. Sama veður. Báða þessa daga var regn. 14. Lognveður. 15. Sigldum um nóttina góðan NW vind frá 7 til 3 mílna í vakt (mesti gangur Lötu Brúnku) þ. e. á fjórum klukkutímum. Laugardagsnóttina sneri vindurinn sér til austurs með ofsastormi með nokkru regni, sem ei fyrr lægði en seint um kvöld. Hvessti strax aftur. önnur vika. 16. Vaxandi ofviðri, svo varð að )áta skipið drífa með tveimur seglum rifuðum, sem loksins rifnuðu rétt í því skipherrann ætlaði að fara að láta halda bænir. Fór þá hvert mannsbarn (nema ég, sem lá í sjósóttar kröm eins og alla fyrrí dagana í rúminu) upp á dekk, hvar skárst hafði verið, því í káhyttunni gat maður hvorki setið, staðið né legið. Tveir menn stóðu alltaf við stýrið, og stundum drengur sá þriðji, en hin- ir voru að bjarga seglunum, sem tregt gekk, þar hver kaðallinn slitnaði af öðrum. Skipherr- ann var orðinn lafhræddur. En mitt í þessu, um nónbil, sneri vindurinn sér hastarlega í útnorð- ur og sjávarólgan sefaðist stórum, hver vindur þó ei varði nema litla stund, þá hann smám saman sneri sér til suðurs. 1 þessu slingraði skipið skelfilega, svo tvær rúður meðal annars brotnuðu, önnur í hurðinni, hin í stórum gler- skáp. Þegar við ætluðum að fara að borða, rauk ég af kipp, sem kom á skipið, í loftinu yfir kistu sem var milli mín og skipsborðs (hliðveggsins) og kom þar niður á höfuðið. Þá mátti læra að fljúga. Mad. Puls*) flaug líka eins og fuglinn út úr skálinni hjá stýrimanninum, og allt var á ringulreið. Sérhvað eitt var reyrt niður með reipum og klömpum. 17. Hvass landsynningur með regni, og nótt- ina eftir jókst hvoi’ttveggja. 18. Nokkuð hægra veður með stórskúrum og landnyrðingi. Vorum við eftir bestikkinu móts við Fuglasker. 19. Sama veður. Um kvöldið logn. 20. Lítil gjóla á landsunnan er viðhélzt fram til kl. 7 e. m., þá logn gjörðist. Um nóttina kl. 11 sneri vindur sér til vesturs. 21. Viðhélzt sami vindur. Sigldum frá 3 til 41/2 niílu ávakt, og um nóttina 4 til 6. 22. útnyrðingur, er snarsneri sér til suðurs, og um nóttina til landsuðurs. Þriðja vika. 23. Stórviðri á landsunnan. Lygndi hann þá, en leit illa út. 25. Kl. 4 fengum við hægan útnyrðing. Vor- um eftir skipherrans reikningi hér um 60 mílur fyrir vestan Færeyjar. Um leið og við ca kl. 1 vorum nær því loknir við að fá til lífs vorn sið- vanalega bleytta harða fisk og smjör-ölgraut, kom bátsmaðurinn niður í káhyttu og beiddi skipherrann að koma upp á dekk. Við fórum þar upp skömmu eftir, og var þá farið að venda í mesta flaustri. Skipherrann var heldur snúðug- ur í bragði, og loksins fengum við að vita að við værum komnir svo langt að Færeyjar sæjust, og ei óhætt að halda sömu stefnu. öllum kom þetta mjög óvart, þar við eftir stýrimanns-út- reikningnum áttum að vera fullar 12 þingmanna- leiðir fyrír vestan Færeyjar, sem sló þannig lítil- lega feil, og sýndi hve sterkir formennirnir voru í konstinni. 26. Hvass landsynningur með stórskúrum. *) Puls er latína og merkir grautur. Hefur þetta ver- ið orðatiltæki skólapilta og haft um grautinn. 326 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.