Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 61
Útgerðarstaðir og verstöðvar
SANDOERÐI
Eftir Gils Guðmundsson.
Þriðja grein.
útgerðin síðari árin.
Árið 1933 varð sú breyting á útgerð og at-
vinurekstri Haraldar Böðvarssonar í Sandgerði,
að tveir ungir menn gengu til samstarfs viðhann
og sameignar, og sáu eftir það um rekstur fisk-
veiðistöðvarinnar að langmestu leyti. Menn
Nokkur af húsum h. f. Miðnes.
þessir voru Ólafur Jónsson frá Akranesi og
Sveinn Jónsson úr Reykjavík. ólafur er fæddur
á Akranesi 28. apríl 1907, sonur hjónanna Jóns
Gunnlaugssonar vitavarðar og Guðlaugar Gunn--
laugsdóttur. Hann lauk prófi í Verzlunarskól-
anum árið 1927. Starfaði hann síðan við út-
gerð og verzlun Haraldar Böðvarssonar á Akra-
nesi unz hann varð meðeigandi Sandgerðis-
stöðvarinnar svo sem áður segir. Kona hans er
Lára Guðmundsdóttir.
Sveinn Jónsson er fæddur í Reykjavík 21. okt.
1907, sonur hjónanna Jóns Einars Jónssonar
prentara og Sigurveigar Guðmundsdóttur. Hann
stundaði verzlunarnám bæði hér heima og í
Englandi, og vann síðan við verzlunar- og skrif-
stofustörf í Reykjavík, unz hann .gerðist skrif -
stofumaður hjá Lofti Loftssyni 1 Sandgerði.
Lar starfaði hann síðan til ársins ] 933, að hann
gerðist meðeigandi hlutafélagsins Har. Böðvars-
son & Co. í Sandgerði. Kvæntur er hann Ragn-
heiði Einarsd., ættaðri úr Rvík. Sveinn og ólafur
hafa í sameiningu veit fyrirtæki þessu forstöðu
víkingur
síðan. Árið 1941 seldi Haraldur Böðvarsson sinn
hluta Sandgerðiseigna. Kaupandinn var h.f.
Miðnes, sem Sveinn og ólafur gengust þá fyrir
að stofnað yrði. Eru þeir aðaleigendur þess
félags. Stjórnina skipa: Sveinn Jónsson, for-
maður, Ólafur Jónsson og Axel Jónsson.
Þau ár, sem Ólafur Jónsson og Sveinn Jóns-
son hafa átt og rekið fiskveiðistöðina í Sand-
gerði, hafa þeir fært allmikið út starfsemina,
komið á fót beinaverksmiðj u og reist stórt lmað-
frystihús.
Axel Jónsson hefur starfað við útgerðarfyrir-
tæki í Sandgerði um 30 ára skeið. Hann hefur
verið verzlunarstjóri hjá h.f. Miðnes frá því er
félagið var stofnað. Er það umfangsmikið og
erilsamt, einkum á vertíðinni, en Axel hefur
rækt það með mikilli lipurð og dugnaði.
Loftur Loftsson rak fiskveiðistöð sína af
kappi allmiklu, svo sem áður er frá skýrt.
Þegar krepputímarnir hófust um og eftir
1930, þústnaði mjög að hjá sjávarútvginum,
og urðu margir útgerðarmenn fyrir þungum á-
föllum, svo að fyrirtæki sumra þeirra sliguðust
með öllu. Útgerð Lofts hafði lengst af borið sig
vel, en nú tók að þyngjast fyrir fæti. Kom þar
að lokum árið 1936, að Loftur sé sér ekki fært
að halda útgerð lengur áfram. Yfirtók Lands-
bankinn þá útgerðarstöðina í Sandgerði, en við
Við bryggju. Nýr viti í smíðum.
331