Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 68

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 68
henta á Vestfjörðum. Fann hann því upp nýtt lag, sem hann hefir notað æ síðan og hefir reynzt afburða vel, bæði á Vestfjörðum og ann- ars staðar, því að bátar hans eru nú komnir víða um land, meira að segja alla leið til Aust- fjarða. Bátur er sýnir smíöalag Gísla Jóhannssonar. 1934: Þilskipið „Njáll“ smíðað upp og sett í það 100 hesta vél. Er nú í Hafnarfirði. Það gefur að skilja, að hér að framan eru aðeins örfá dæmi nefnd um starfsemi Gísla. Frá bátasmíðastöð hans hafa nú flotið á 4. hundrað fleytur, frá skektum og upp í allstór fiskiskip. Og mikið af þessu er eins manns verk, þótt hann að sjálfsögðu hafi notið nokkurrar aðstoðar. Mesta og bezta aðstoð hefir Hjörtur bróðir hans veitt honum. Kom hann til bróður síns um fermingaraldur og dvaldi við smíðar hjá honum um 20 ára skeið. Þar eð Gísla auðn- aðist ekki að afla sér fagmenntunar, kom hon- um vel að hafa Hjört fyrir aðstoðarmann, því að hann var fær um að leysa úr ýmsum erfið- léikum. Gerði hann teikningar af mörgum þeim bátum, sem þeir smíðuðu, þ. á m. af „Haf- frúnni“ og „Konráði“. Rómar Gísli mjög iðni og leikni bróður síns og telur aðstoð hans við starfið hafa fleytt þeim bræðrum yfir marga erfiða boða. Um bróður sinn hefir Gísli sagt: Opnir bátar voru fyrstu viðfangsefni Gísla og urðu þeir brátt mjög eftirsóttir, einkum í Arnarfirði, Tálknafirði og Patreksfirði. Eftir 10 ára starf var honum ljóst, að hús- rúm það, sem hann hafði haft, fullnægði ekki þörfinni og byggði hann þá allstórt smíðahús. Sama ár smíðaði hann fyrsta vélbátinn. Næsta ár, 1916, smíðaði hann v.b. „Svaninn“, 10 smál. bát, sem hann síðar, 1930, stækkaði upp í 16 smálestir. Árið 1920 stækkaði hann smíðahús sitt til muna. Er það nú 19,7X12,5 metrar að stærð og þar rafknúin sög og fleiri nýtízku tæki til- heyrandi atvinnurekstrinum. Er hús þetta svo stórt, að þar er hægt að framkvæmt smíði á 30 smál. skipi. Árið 1923 smíðaði hann „Haffrúna", 14 smál. bát, en 1925 ,,Konráð“, 18 smál. „Konráð“ er nú flóabátur á Breiðafirði. Á þeim 40 árum, sem Gísli hefir nú starfað sjálfstætt, hefir hann umsmíðað, breytt og end- urbætt fjölda báta og skipa. Hér skulu aðeins nokkur dæmi nefnd (tekin eftir grein í Alþbl. jan. 1939 eftir Ingivald Nikulásson): 1918: Skonnortan „Sigurborg" (um 30 smál.) uppbyggð í kútterskonnortu. 1919: „Express“ (25 smál.) frá Flatey, var stefnisbátur áður. Tekinn sundur fyrir aftan miðju, breytt í kútter, klæddur upp og sett í hann ný vél. Var þá sem nýtt skip. 1920: Fiskiskipið „Pilot“ (um 30 smál.) smíð- að upp og sett í það vél. Sama ár gert við „Vegu“ (um 25 smál.) frá Stykkishólmi. — Á því ári smíðað fyrir 80—90 þús. kr. „Skemmra hefði komizt á bráðsleipri braut ef bróðirinn hefði’ ekki stutt, æði tíðum hans aðstoðar naut, þá úr götunni steini var rutt“. Árið 1929 varð eitt hið erfiðasta ár Gísla, að því er fjármálin snerti. Það ár varð hann fyrir svo gífurlegu fjárhagstjóni, að tvísýnt var um það, hvort hann gæti rétt starfsemi sína við. Varð þetta til þess, að Hjörtur flutti frá Bíldudal og lei'taði sér atvinnu annars staðar, Missti Gísli þar sinn ötula samstarfsmann, sem með ósérplægni, atorku og drenglyndi hafði Fallegt smíðalag. stutt hann í starfinu. — En áhugi Gísla og at- hafnir voru ekki brotnar á bak aftur. Einn stóð hann uppi, en það var aflraun, sem hann þoldi. Hann hélt ótrauður áfram atvinnu sinni. Og síðan hefir fjöldi báta frá honum komið, ýmist 338 VlKlNGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.