Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Síða 70

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Síða 70
Á liðnu hausti komu út nokkrar ljóðabækur og hefur „Víkingur“ séð sumar þeirra. Tekur hann sér það bessaleyfi að birta nokkur sýnis- horn af því, sem honum þótti þar athyglis- verðast. Fyrst eru þá Ný ljóð Guðfinnu frá Hömrum. Það er falleg bók, smekklega út gefin, og margt er þar vel gerðra ljóða. Yrkja naumast aðrar konur betur á landi hér um þessar mundir en Guðfinna frá Hömrum. Ekki eru tök viðvan- ingsins á kvæðinu Mannsbarn: Við háan múr er mannsbarn í förum í leit að geislum, í leit að svörum. Sumstaðar bergið er bergfléttu þakið, sumstaðar blátt, sorfið, nakið. Maður gengur, svo léngi sem lifir, hvorki er vegur . undir né yfir. Kalinn á hug og kvalinn efa ræðst hann á bergið hnýttum hnefa. Þögul og köld eru klettaleynin. Svo ber hann höfði við harðan steininn. Þögnin eykst og hann þrýstir í harmi að náköldum hamrinum nöktum barmi. Hjarta mannsins við múrinn grætur. Að fótum bjargsins hann fallast lætur. Stjarna hrapar í heiðnætur friði sem hrynji laufblað af Ijóssins viði. Fyrri bók Guðfinnu frá Hömrum var vel tek- ið. Flest hin sömu einkenni og þar skipuðu öndvegið finnast einnig í ljóðunum hennar nýju. Þó eru nýju kvæðin mörg hver beizkari, tregafyllri og — að manni finnst — sannari. Það er og augljóst, að skáldkonan hefur fast- ari tök á yrkisefnum sínum nú en áður. Hér kemur annað kvæði Guðfinnu: Hið gullna augnablik. Þú vissir það ei, þig gisti í gær hið gullna augnablik. Prá tímanna djúpi bylgja barst að brjósti þér, ljós og hvik. En sjón þín var haldin og heyrnin með við hversdagsins önn og ryk. Það örlögum réð að sál þín svaf, er sótti þig heim sú stund, því aldan, er faldar geislum guðs um gæfunnar bláu sund, hnígur aðeins eitt einasta sinn á ævi þinnar fund. I morgun vaknaði vera þín í vitund um hjartans töp, því nóttin átti sér engan draum en ótal stjarna hröp. Þá fannst þér auðlegð, sem önnin gaf vera illra norna sköp. Með þöglum trega telurðu nú hvert tímans bylgjuslag. Nú stillir ei himinn hörpu meir við hafsins undralag. Það augnablik, sem var gullið í gær, er grátt eins og vofa í dag. Ég hvísla óði í eyra þér um æskunnar týndu sýn. En ljóð mitt á framar engin orð og engan tón, sem skín. 340 VtKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.