Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1987, Síða 26
Hér fer ekkert milli
mála. Mennirnir
sem sátu fundinn
á skrifstofu Vél-
stjórafélags
íslands þriöju-
daginn 8.
desember 1936 í
umboöi félaga
sinna, töldu sig
hafa stofnaö
Farmannasam-
band íslands.
26 VÍKINGUR
Fundargerð stofnfund-
arins, sem haldinn var
8. desember 1936.
„Stofnfundur“
Hér fer ekkert milli mála.
Mennirnir sem sátu fundinn á
skrifstofu Vélstjórafélags Is-
lands þriöjudaginn 8. des-
ember 1936 í umboði félaga
sinna, töldu sig hafa stofnað
Farmannasamband íslands.
Yfirskriftin á fundargerðinni,
Stofnfundur, ber þvi fullt vitni.
Þar er líka kosin stjórn sam-
bandsins og þess má á
nokkrum bréfum finna stað
að hún fullyrðir að sambandiö
hafi verið stofnað á þessum
umræddafundi.
Þótt undirritaður hafi hvergi
séö þvi beinlínis mótmælt að
8. desember 1936 sé stofn-
dagur FFSI er Ijóst að hann er
ekki viöurkenndur. Þar ber
hæst að á fána FFSI stendur
ártalið 1937, sem ekki er
hægt aö skilja öðruvísi en að
það ár sé talið vera stofn áriö.
í öðru lagi skal hér enn vitnað
í bækur Öldunnar. Á aðal-
fundi Öldunnar, 6. júni 1936
skýrir formaöur félagsins frá
gerðum stjórnarinnar, þar á
meðal: „... undirbúningi að
stofnun Landssambands far-
manna". Á fundi 14. október
1936 gerir formaður grein
fyrir hvað þessu máli liöi, og
leggur fram drög að lögum
fyrir hið fyrirhugaða sam-
band. Orðrétt úr fundargerð:
Umræður urðu engar um þaö
mál, þar sem málið er í hönd-
um félaganna, og Aldan hefur
samþykkt að vera með í
stofnun sambandsins þegar
undirbúningi er lokið.
Fleira finnst ekki um þetta
mál i gerðarbókum Öldunnar
þar til fulltrúar eru kosnir á
sambandsþing i mai 1937,
hvergi frá því skýrt aö Far-
mannasamband Islands hafi
verið formlega stofnað.
Vélstjórafélagið leit
hinsvegar svona á málið: i
desemberblaði Vélstjórarits-
STOFNFUNDUR
Þriöjudaginn 8. des. 1936 var haldinn fundur að til-
hlutan eftirtaldra félaga á skrifstofu Vélstjórafélags
íslands:
Skipstjórafélagsins Öldunar,
Skipstjórafélagsins Ægis,
Vélstjórafélags íslands,
Skipstjórafélagsins Kára,
og Skipstjórafélags Reykjavíkur.
Auk þess voru mætti 4 menn frá Skipstjórafélagi
íslands.
Fundarstjóri var tilnefndur Hallgrímur Jónsson, ritari
Guömundur Sveinsson. Ritari las upp fundargeröir
tveggja funda, sem haldnir voru síöastl. júnímánuö til
undirbúnings stofnunar farmannasambands Islands. Þar
næst las formaöur upp uppkast aö lögum fyrir samband-
iö, sem samiö hefur veriö aö þá síöast liðnu sumri, hóf-
ust síöan umræöur um verkefni og starfsviö hins fyrir-
hugaöa sambands og virtist mönnum, aö á þessum
tímum, er allt væri skipulagt væri nauösynlegt aö far-
menn heföu samband sín á milli, til aö koma áhuga-
málum sínum í framkvæmd.
Konráö Gíslason las upp bréf, sem honum haföi borist
frá skipstjórafélaginu Ægi á Siglufiröi. Vill þaö gera
ýmsar breytinar á uppkasti því aö lögum sem því haföi
veriö sent til athugunar.
Einar Stefánsson skipstjóri lýsti því yfir f.h. Skip-
stjórafélags íslands, aö þeir 4 úr því félagi, sem voru
mættir gætu ekki tekiö þátt í stofnun sambandsins, nú á
þessum fundi. Friörik Ólafsson skýröi máliö frá sjónar-
miöi skipst.fél. íslands.
Ýmsir aörir tóku til máls og fannst flestum lögunum
mikiö ábótavant.
Júlíus Ólafsson vildi aö sambandiö yröi stofnaö þegar
á þessum fundi og aö félög sem tækju þátt í því fyrir
næsta sambandsþing teldust stofnendur.
Svo hljóöandi tillaga frá Guöbjarti Ólafssyni var lögö
fram: „Legg til aö fundurinn taki ákvöröun um aö stofna
Farmannasamband íslands og kjósi bráöabirgöastjórn,
er undirbúi sambandsþing á næsta vori. Leggi þaö þing
fullnaöarsamþykkt á lög fyrir samþandiö. Skulu þau fé-
lög sem ganga í sambandiö á þvi þingi hafa sömu rétt-
indi þar og stofnendurnir".
Tillagan var samþykkt einu hljóöi:
Fyrir Skipst.fél. Ölduna: Guöþjartur Ólafsson, Guö-
mundur Sveinsson;
Vélstjórafél. íslands: Hallgrímur Jónsson, Þorsteinn
Árnason, Júlíus Ólafsson;
Skipstjórafél. Ægi Rvík: Alexander Jóhannesson;
Skipstjórafél. Reykjavikur: Konráö Gíslason;
Skipstjórafél. Kára íHafnarf.: Þorgrímur Sveinsson.
Kosnir voru ístjórn og laganefnd þessir:
Hallgrímur Jónsson Þorgrimur Sveinsson
Guöbjartur Ólafsson Konráö Gíslason
Sigurjón Einarsson
Fundi slitiö.